Ættu landsréttardómarar að skrá hagsmuni sína nánar?

Þingmaður Pírata spurði dómsmálaráðherra hvort tilefni væri til þess, í ljósi þess að Landsréttur kveður upp flesta endanlega dóma nú til dags, að landsréttardómarar birti ítarlegri hagsmunaskráningu, eins og hæstaréttardómarar hafa gert frá 2017.

Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Andrés Ingi Jónsson þingmaður Pírata.
Auglýsing

Frá því árið 2017 hefur verið hægt að nálg­ast upp­lýs­ingar um hags­muna­tengsl dóm­ara við Hæsta­rétt Íslands á vef dóm­stóls­ins. Það var eins og margir eflaust muna, út af „soldlu“, eins og stundum er sagt, en undir lok árs 2016 var fjallað um hluta­bréfa­eign hæsta­rétt­ar­dóm­ara í fjöl­miðl­um.

Þá umfjöllun kall­aði Skúli Magn­ús­son fyrr­ver­andi for­maður Dóm­ara­fé­lags­ins og nú umboðs­maður Alþingis eitt sinn „þaul­skipu­lagða aðgerð“ til að koma höggi á trú­verð­ug­leika íslenskra dóm­stóla. Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2020 að tap eins dóm­ara af hluta­bréfa­eign í Lands­banka Íslands í hrun­inu hefði verið svo veru­legt að draga hefði mátt í efa óhlut­drægni hans og hefur end­ur­upp­töku­nefnd fall­ist á end­ur­upp­töku nokk­urra mála sem tengj­ast hrun­inu vegna hluta­bréfa­eignar dóm­ara í föllnu bönk­un­um.

Andrés Ingi Jóns­son þing­maður Pírata spurði Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra að því, í skrif­legri fyr­ir­spurn því hvort hann teldi ástæðu til þess að dóm­arar við Lands­rétt birtu sam­bæri­legar upp­lýs­ingar um hags­muna­tengsl sín og hæsta­rétt­ar­dóm­arar gera í dag, þar sem Lands­réttur hafi frá stofnun árið 2018 haft loka­orðið í flestum dóms­málum sem inn á borð dóm­stóla koma.

Auglýsing

Í svari við fyr­ir­spurn þing­manns­ins kemur fram að ráð­herra hafi ekki tekið afstöðu til þess hvort rétt sé að birta frek­ari upp­lýs­ingar um hags­muni lands­rétt­ar­dóm­ara. Í svari ráð­herra segir að við ákvörðun um hvaða upp­lýs­ingar dóm­urum sé skylt að birta opin­ber­lega veg­ist „ann­ars vegar á sjón­ar­mið um aðgengi almenn­ings að upp­lýs­ingum um dóm­ara og hins vegar frið­helgi einka­lífs og per­sónu­vernd þeirra sem gegna emb­ætti dóm­ara“ og að mik­il­vægt sé fundið sé hæfi­legt jafn­vægi í þeim efn­um.

Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra.

Ráð­herra bendir svo einnig á það í svari sínu að lögum sam­kvæmt setji nefnd um dóm­ara­störf reglur um hvers konar auka­störf, eign­ar­hald í hluta­fé­lög­um, eða þátt­taka í starfi ann­arra félaga og sam­taka geti sam­rýmst emb­ætt­is­störfum dóm­ara.

Bendir ráð­herra jafn­framt á að það eru í gildi reglur frá 2017 þess efni að aðilar dóms­mála eigi rétt á að fá upp­lýs­ingar um auka­störf dóm­ara sem fara með mál þeirra, sem og eign­ar­hald í félögum eða atvinnu­fyr­ir­tækj­um, ef nefnd um dóm­ara­störf telji til­efni til þess.

„Með öðrum orðum þá á aðili dóms­máls rétt á að fá upp­lýs­ingar um hags­muna­tengsl dóm­ara til að gæta hags­muna sinna, umfram það sem leiðir af skyldu til að birta slíkar upp­lýs­ingar opin­ber­lega,“ segir í svari ráð­herra.

Engar reglur knýja fram hags­muna­skrán­ingu hæsta­rétt­ar­dóm­ara

Andrés Ingi spurði dóms­mála­ráð­herra einnig að því á hvaða laga­grund­velli birt­ing á upp­lýs­ingum um hags­muna­tengsl hæsta­rétt­ar­dóm­ara væri byggð. Svarið er það, að engin sér­stök krafa er um það í lögum að hæsta­rétt­ar­dóm­arar birti hags­muni sína með þeim hætti sem þeir hafa gert und­an­farin ár.

Dóms­mála­ráðu­neytið afl­aði upp­lýs­inga frá Hæsta­rétti Íslands um þetta og fékk þau svör að dóm­arar við Hæsta­rétt hafi að eigin frum­kvæði ákveðið að birta meiri upp­lýs­ingar á vef rétt­ar­ins en lög gera kröfur um, en sam­kvæmt reglum sem settar voru árið 2018 á að birta opin­ber­lega upp­lýs­ingar um fyrri störf dóm­ara og þau auka­störf sem dóm­ari gegn­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent