Stjórnendur RÚV hafi ekki staðið alveg nógu þétt við bakið á Helga Seljan og fleirum

Útvarpsstjóri ræðir nýjar siðareglur RÚV í viðtali sem birtist á vef Blaðamannafélagsins í dag. Þar samsinnir hann því að RÚV hefði mátt standa betur við bakið á fréttamanninum Helga Seljan og fleirum í tengslum við ófrægingarherferð Samherja.

Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri.
Auglýsing

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri telur að stjórn­endur RÚV hafi „kannski ekki staðið alveg nógu þétt við bakið á“ Helga Seljan og fleiri starfs­mönnum fyr­ir­tæk­is­ins sem urðu fyrir barð­inu á ófræg­ing­ar­her­ferð útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Sam­herja. Þetta segir Stefán í við­tali sem birt­ist á vef Blaða­manna­fé­lags Íslands í dag.

Í við­tal­inu ræðir útvarps­stjóri um nýjar siða­reglur RÚV sem tóku gildi í sum­ar, en með setn­ingu þeirra var siða­nefnd sem starf­aði sam­kvæmt eldri siða­reglum rík­is­fjöl­mið­ils­ins lögð nið­ur.

Umdeilt ákvæði eldri siða­reglna, sem fól í sér að starfs­fólk sem sinnti umfjöllun um frétt­ir, frétta­tengt efni og tæki ekki opin­ber­lega afstöðu í umræðu um póli­tísk mál­efni eða umdeild mál í þjóð­fé­lags­um­ræð­unni, þ.á.m. á sam­fé­lags­miðl­um, er hvergi að finna í nýju regl­un­um.

Auglýsing

Útgerð­ar­fyr­ir­tækið Sam­herji kærði í ágúst árið 2020 alls ell­efu starfs­menn RÚV fyrir tján­ingu á sam­fé­lags­miðl­um, sem í flestum til­fellum var sett fram vegna mynd­bands þar sem spjótum fyr­ir­tæk­is­ins var beint að Helga Selj­an. Siða­nefndin úrskurð­aði Helga einan sekan um brot á regl­un­um, vegna hluta þeirra ummæla hans á sam­fé­lags­miðlum sem Sam­herji kærð­i.

Stefán sam­sinnir því í við­tal­inu að stjórn­endur RÚV hefðu mátt standa betur með þeim starfs­mönnum sem „lentu í þessum ótrú­legu hremm­ing­um“ fyrir það að hafa verið að sinna sinni vinnu.

„Það held ég að hafi ekki tengst bara þessum siða­reglum eða þessu til­tekna máli heldur ýmsu öðru, eins og t.d. aðgengi að og afhend­ingu á gögnum til þessa aðila, sem mis­not­aði það efni síðan sem varð til þess að við tókum fyrir það að láta efni af hendi í eigin fram­leiðslu þessa fyr­ir­tækis á „frétt­u­m“,“ er haft eftir Stef­áni í við­tal­inu.

Vinnu­reglur frétta­fólks og siða­nefnd BÍ

Þrátt fyrir að búið sé að leggja niður siða­nefnd RÚV og fjar­lægja hið umdeilda ákvæði úr siða­reglum mið­ils­ins er það þó ekki svo að engar reglur gildi um tján­ingu þeirra starfs­manna sem starfa við fréttir og dag­skrár­gerð, en vinnu­reglur RÚV um fréttir og dag­skrár­efni tengt þeim voru gefnar út end­ur­skoð­aðar í des­em­ber 2020.

„Þarna er rétti­lega fjallað um að þeir sem vinna hjá RÚV og eru að sinna fréttum og dag­skrár­gerð þurfa að gæta að því að það sé hafið yfir allan vafa að þeir séu hlut­lægir og óhlut­drægir í sinni umfjöllun og séu ekki að tjá sig opin­ber­lega, hvort heldur sem er á sam­fé­lags­miðlum eða með öðrum hætti, um ein­hver mál sem við­kom­andi er síðan að skrifa um og fjalla um. Um þetta atriði eru allir sam­mála,“ segir Stefán í við­tal­inu.

Þess fyrir utan gilda siða­reglur Blaða­manna­fé­lags Íslands líka um þau sem starfa við frétta­tengda umfjöllun hjá RÚV. „Ég hef engar efa­semdir um lög­sögu siða­nefndar BÍ um það sem snýr að okkar fólki,“ segir Stefán í við­tal­inu, sem lesa má í heild sinni á vef Blaða­manna­fé­lags­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent