„Af hverju gerist ekkert á þinginu?“

Björn Leví telur að hægt sé að haga störfum þingsins með öðrum hætti en gert er í dag.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Auglýsing

„Af hverju ger­ist ekk­ert á þing­inu? Af hverju sofna alltaf enda­laust mörg mál í nefnd eða eru lögð fram aftur og aftur og af hverju klárum við ekk­ert nema kannski enda­lausar EES-inn­leið­ingar sem ég held að sé aðal­lega það sem ger­ist hérna?“

Þing­maður Pírata, Björn Leví Gunn­ars­son, spurði þess­ara spurn­inga undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í vik­unni.

Hann sagð­ist sjá nokkrar ástæður fyrir því af hverju mál sofn­uðu í nefnd eða væru ekki kláruð.

„Til dæmis er þing­flokkum í minni­hluta ein­fald­lega skammt­aður fjöldi þing­mála í lok hvers þings eða þing­hlés: Þið fáið eitt eða tvö mál í atkvæða­greiðslu ef þið eruð góð og hleypið fjár­lög­unum í gegn. Þið fáið líka eitt eða tvö önnur mál, en það verður að vera jafnt vegna þess að það er bauna­taln­ing í gang­i,“ sagði þing­mað­ur­inn og beindi orðum sínum að meiri­hluta Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Auglýsing

Að auki væru öll þing­mál rík­is­stjórn­ar­innar alltaf „minnsti sam­nefn­ar­inn“.

„Það er bara það sem allir rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir ná að sam­þykkja sín á milli en ekk­ert umfram það, óháð því hvort meiri­hluti væri fyrir því í þing­inu eða ekki. Það er nefni­lega mik­il­vægt að átta sig á því að það gæti verið meiri­hluti í þing­inu fyrir máli sem kemst ekki í gegnum rík­is­stjórn­ina. Það hefur gerst. Það komu meira að segja tvö þannig mál á síð­asta þingi, um þung­un­ar­rof og rafrett­ur. Þau voru sam­þykkt óháð aðild fólks að þing­flokk­um. Það væri hægt að gera svo­leiðis oft­ar. Það væri til eft­ir­breytn­i,“ telur hann.

Ákvörðun meiri­hlut­ans að starfa með þessum hætti

Enn­fremur sagði Björn Leví að eft­ir­lit þings­ins væri í algeru lág­marki í boði meiri­hlut­ans.

„Við náum ekki að skoða þau mál sem hafa verið sam­þykkt upp á það hvort þau hafa kostað eins mikið eða lítið og sagt var að þau ættu að gera, hvort vel hafi tek­ist til eða ekki. Afleið­ingin af þessu öllu er sú að það ger­ist í raun ekki neitt. Þátt fyrir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi verið lengi við stjórn, ég veit ekki hve mörg ár, er „bús“ í búðir enn fjar­lægur draumur ein­hverra sem hafa kannski áhuga á því. Ég held meira að segja að meiri­hluti væri fyrir því máli á þingi ef það kæmi til atkvæða­greiðslu. En nei, þannig virkar þingið ekki. Það er ákvörðun meiri­hluta þings­ins að starfa svona. Það er hægt að gera hlut­ina öðru­vísi,“ sagði þing­mað­ur­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent