Af hverju var ekki bara hægt að hugsa flutning Fiskistofu til enda?

fiskistofa_2_1.jpg
Auglýsing

Sig­urður Ingi Jóhanns­son hefur nú nán­ast algjör­lega og end­an­lega verið gerður aft­ur­rækur með áform sín um flutn­ing Fiski­stofu til Akur­eyr­ar. Í gær­kvöldi við­ur­kenndi hann mis­tök­in, sagði að margt hefði verið hægt að gera betur og að hann sé ekki yfir það haf­inn að læra af verkum sín­um. Það er ágætt hjá ráð­herra að við­ur­kenna þetta loks­ins, en áður var hann búinn að bakka með hraðan flutn­ing stofn­un­ar­inn­ar.

Starfs­fólk Fiski­stofu hefur haft uppi mikla og mál­efna­lega gagn­rýni á ákvörð­un­ina sem hefur haft sitt að segja, og kvartað var meðal ann­ars til umboðs­manns Alþing­is. Umboðs­maður komst að þeirri nið­ur­stöðu í vik­unni að Sig­urður Ingi hafi ekki ástundað vand­aða stjórn­sýslu­hætti í mál­inu. Hann hafi ekki heldur fengið ráð­gjöf um álið eins og honum beri að gera sam­kvæmt lög­um.

Þetta er í annað sinn á þessu ári, sem enn telur innan við fjóra mán­uði, sem umboðs­maður Alþingis fjallar um mál sem varða þessa laga­skyldu ráð­herra um að leita sér ráð­gjaf­ar, en hún var líka til umfjöll­unar í áliti umboðs­manns í leka­mál­inu. Umboðs­maður bendir Sig­mundi Davíð Gunn­laugs­syni for­sæt­is­ráð­herra sér­stak­lega á þetta í áliti sínu um Fiski­stofu. Það verður fróð­legt að heyra hvort for­sæt­is­ráð­herr­ann hefur eitt­hvað um þetta að segja.

Auglýsing

Og svo er það ann­að. Eftir allt þetta hringl með stofn­un­ina er komið í ljós að ekk­ert verður af flutn­ingi Fiski­stofu næstu árin. Það er sigur fyrir starfs­menn en þóttt þeir hafi sigrað ráð­herr­ann í mál­inu hefur það ekki verið án fórna.

Fiski­stofu­stjóri hefur sagt að óvissan um fram­tíð­ina hafi haft gríð­ar­lega slæm áhrif, stofn­unin sé farin að lið­ast í sund­ur. Næstum tveir af hverjum tíu starfs­mönnum eru þegar hætt­ir, og starf­manna­veltan því gríð­ar­lega há, og ekki hefur verið hægt að ráða í öll störf sem losna vegna óvissunn­ar.

Nú er jafn­framt búið að eyða tæpu ári í ein­hvern rússi­bana um þessi mál með til­heyr­andi tíma­eyðslu starfs­fólks Fiski­stofu og starfs­fólks í ráðu­neyt­inu. Þetta er tími sem maður ímyndar sér að hefði vel mátt nýta í ann­að. Til hvers var unn­ið? Af hverju var ekki bara hægt að hugsa hlut­ina til enda áður en farið var af stað?

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None