Kemur í ljós á allra næstu vikum hvort Tal og 365 fái að sameinast

pallgunnar.jpg
Auglýsing

Það mun koma í ljós á allra næstu vikum hvort Tal fái að renna inn í fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tækið 365 miðla. Sam­runi félag­anna veltur á sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem liggur enn ekki fyr­ir. Páll Gunnar Páls­son, for­stjóri eft­ir­lits­ins, seg­ist ekki geta tíma­sett nákvæm­lega hvenær hans sé að vænta en reiknar með því að það verði á næstu vik­um.

Kjarn­inn greindi frá því í síð­ustu viku að núver­andi eig­endur Tals eigi að fá 19,78 pró­sent hlut í  365 miðlum sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­runa félag­anna tveggja. Eign­ar­hlutur félaga á vegum Ingi­bjargar Pálma­dótt­ur, sem hefur verið aðal­eig­andi 365 miðla um nokk­urra ára skeið, minnkar við þetta niður í 77,97 pró­sent. Eig­andi Tals í dag er félagið IP fjar­skipti. Eig­endur þess eru fag­fjár­festa­sjóð­ur­inn Auður 1, sem á 94 pró­sent hlut, og félag í eigu Kjart­ans Arnar Ólafs­son­ar, sem á sex pró­sent hlut.

Líf­eyr­is­sjóðir verða fjöl­miðla­eig­endur



Auður 1 er fram­taks­sjóður sem er rekstri fjár­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Virð­ing­ar. Hann var stofn­aður árið 2008 og þá lögðu rúm­lega 20 fjár­festar honum til alls 3,2 millj­arða króna. Tal er eitt átta fyr­ir­tækja sem sjóð­ur­inn á hlut í.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans eru stærstu fjár­festar sjóðs­ins íslenskir líf­eyr­is­sjóð­ir, meðal ann­ars Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, þó þar sé einnig að finna ein­stak­linga.  Líf­eyr­is­sjóðir lands­ins verða því óbeinir eig­endur að stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki lands­ins verði sam­run­inn sam­þykkt­ur.

Auglýsing

Munu óska eftir frek­ari upp­lýs­ingum



Elfa Ýr Gylfa­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri fjöl­miðla­nefnd­ar, sagð­ist í sam­tali við Kjarn­ann í síð­ustu viku gera ráð fyrir því að nefndin muni óska eftir frek­ari upp­lýs­ingum um eig­endur Auðar 1. Hún sagði enn­fremur að lög um fjöl­miðla kveði skýrt á um að fjöl­miðla­nefnd geti óskað eftir upp­lýs­ingum um eign­ar­hald og yfir­ráð yfir fjöl­miðl­um. Fjöl­miðla­nefnd fund­aði um málið síð­ast­liðin föstu­dag og mun, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, senda beiðni um frek­ari upp­lýs­ingar um eign­ar­haldið í þess­ari viku.

 

„Ég geri frekar ráð fyrir að það verði óskað eftir því, en við munum jafn­framt líka fara yfir þetta á fundi fjöl­miðla­nefndar á föstu­dag.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None