Allergan lofaði að Actavis yrði á Íslandi fyrir mánuði síðan - Á starfsemina ekki lengur

19074241728_4d3b384514_b.jpg
Auglýsing

Það er skammt stórra högga á milli hjá starfs­fólki Act­a­v­is. Fyrir hrun vann það hjá íslensku lyfja­fyr­ir­tæki sem íslenskur athafna­mað­ur, Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, hafði fengið risa­lán hjá Deutsche Bank til að taka af mark­aði. Þegar efna­hags­kerfi heims­ins fór á hlið­ina reynd­ist lánið mikið vand­ræða­mál innan bank­ans og langan tíma tók að vinna úr málum Act­a­vis vegna þess. Að lokum tókst það og Björgólfur Thor hélt hlut í félag­inu.

Árið 2011 voru höf­uð­stöðvar Act­a­vis hins vegar færðar frá Íslandi. Árið 2012 keypti banda­ríska lyfja­fyr­ir­tækið Watson Act­a­vis og félögin voru sam­ein­uð.  Um miðjan maí 2013 var síðan til­kynnt um enn meiri stækkun á efna­hags­reikn­ingi Act­a­vis þegar greint var frá kaupum félags­ins á írska lyfja­fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Warner Chilcott. Flestum þess­ara hrær­inga ­fylgdu vil­yrði um að starf­semi Act­a­vis á Íslandi yrði að mestu óbreytt.

Í nóv­em­ber 2014 var til­kynnt um fyr­ir­hug­aða sam­ein­ingu Act­a­vis og All­erg­an. Eftir að hún gekk í gegn tók sam­einað fyr­ir­tæki upp síð­ar­nefnda nafnið í júní 2015, þótt starf­semin á Íslandi hafi haldið Act­a­vis-­nafn­inu.

Auglýsing

Um síð­ustu mán­að­ar­mót var svo til­kynnt um að loka ætti lyfja­verk­smiðju Act­a­vis í Hafn­ar­firði árið 2017 og fækka þar með þeim störfum fyr­ir­tæk­is­ins sem eftir eru á Íslandi úr 700 í 400. Í til­kynn­ingu frá All­ergan vegna þessa var sér­stak­lega tekið fram að önnur starf­semi Act­a­vis á Íslandi myndi hald­ast óbreytt.

Kjarn­inn birti Bak­her­bergi um fram­tíð Act­a­vis 3. júli síð­ast­lið­inn og velti þar fyrir sér, í ljósi ítrek­aðra vil­yrða um að Act­a­vis yrði alltaf íslenskt fyr­ir­tæki, hvort aðvör­un­ar­bjöllur hefðu ekki átt að hringja þegar All­ergan tók sér­stak­lega fram að önnur starf­semi en lyfja­verk­smiðjan myndi verða áfram á Íslandi um ókomna fram­tíð.

Nú, mán­uði síð­ar, hefur All­ergan nefni­lega selt þessa starf­semi til ísra­elska lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Teva og hefur ekk­ert með ákvörðun um fram­tíð­ar­skipan starf­sem­innar að gera. Ekk­ert er minnst á fram­tíð íslensku starf­sem­innar í til­kynn­ingu vegna þess­arra kaupa og í fréttum RÚV í gær­kvöldi var greint frá því að enn væri óljóst hvaða áhrif þessar nýj­ustu svipt­ingar hafa á hana, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá All­ergan á Íslandi.

Því er vert að velta því fyrir sér, í annað sinn á einum mán­uði, hvort starf­semi Act­a­vis sé mögu­lega alfarið að flytj­ast frá Íslandi?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None