Allir ráðherrar VG og Framsóknar tapa trausti en ráðherrar Sjálfstæðisflokks bæta við sig

Ásmundur Einar Daðason er áfram sá ráðherra í ríkisstjórn sem nýtur mest trausts og Bjarni Benediktsson er áfram sá sem flestir treysta lítið. Lilja D. Alfreðsdóttir tapar mestu trausti allra frá því í vor og bætir við sig mestu vantrausti.

Það gustar um ýmsa í ríkisstjórninni um þessar mundir.
Það gustar um ýmsa í ríkisstjórninni um þessar mundir.
Auglýsing

Eng­inn ráð­herra í rík­is­stjórn Íslands nýtur lengur trausts meiri­hluta þjóð­ar­inn­ar. Allir ráð­herrar Vinstri grænna og Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa tapað trausti frá því í apríl en allir ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks hafa bætt við sig trausti á sama tíma. Þetta kemur fram í nýrri könnun Mask­ínu á trausti til ráð­herra sem birt var í dag.

Flestir lands­manna treysta Ásmundi Ein­ari Daða­syni, mennta- og barna­mála­ráð­herra, best eða 46,3 pró­sent aðspurðra. Traust á hann dregst þó saman um sex pró­sentu­stig frá síð­ustu könnun sem gerð var í apr­íl. 

Úr könnun Maskínu.

Sá ráð­herra sem missir mest traust milli kann­ana er Lilja D. Alfreðs­dótt­ir, menn­ing­ar- og við­skipta­ráð­herra, en ein­ungis 19 pró­sent lands­manna segj­ast bera mikið traust til henn­ar. Það er 14 pró­sentu­stigum minna en í apríl og fyrir vikið er Lilja nú orðin sá ráð­herra sem fæstir svar­endur segj­ast bera mikið traust til. 

Auglýsing
Sá ráð­herra sem bætir mestu við sig er Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir,  há­skóla-, iðn­­að­­ar- og nýsköp­un­­ar­ráð­herra, en nú segj­ast 31 pró­sent aðspurðra bera mikið traust til henn­ar. Það er níu pró­sentu­stigum fleiri en í apr­íl. 

Traust til Katrínar Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra og for­manns Vinstri grænna, stendur nán­ast í stað, dalar um rúm­lega eitt pró­sentu­stig. Alls segj­ast 43,2 pró­sent treysta henni vel nú. Traust á hana hefur rýrnað um rúm­lega 18 pró­sentu­stig síðan í des­em­ber í fyrra, þegar rík­is­stjórnin hafði nýverið end­ur­nýjað sam­starf sitt.

Úr könnun Maskínu.

Sig­urður Ingi Jóhanns­son, inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, dalar um tvö pró­sent milli kann­ana og nýtur trausts 30 pró­sent svar­enda. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er sá leið­togi stjórn­ar­flokks sem nýtur minnsts trausts, en alls 23 pró­sent lands­manna segj­ast treysta honum vel. 

Flestir van­treysta Bjarna og Jóni

Þrír ráð­herrar njóta lít­ils trausts hjá meiri­hluta aðspurðra. Sá sem nýtur minnst trausts er Bjarni en alls segj­ast 61 pró­sent svar­enda bera lítið traust til hans. Van­traustið á Bjarna hefur samt sem áður dreg­ist saman síðan í apr­íl, þegar það mæld­ist yfir 70 pró­sent. Jón Gunn­ars­son dóms­mála­ráð­herra kemur fast á hæla Bjarna, en alls segj­ast 59 pró­sent svar­enda van­treysta hon­um. Það eru átta pró­sentu­stigum fleiri en í vor. Sá ráð­herra sem bætir við sig lang­mestu van­trausti er sá sami og tapar mestu trausti: Lilja D. Alfreðs­dótt­ir. Sam­kvæmt könnun Mask­ínu bera nú 51 pró­sent svar­enda lítið traust til henn­ar, sem er aukn­ing upp á 16 pró­sentu­stig frá því í apr­íl. 

Úr könnun Maskínu.

Alls eykst van­traust á níu ráð­herra en það dregst sama á þrjá. Þeir eru allir í Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Auk Bjarna er þar um að ræða Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra og Áslaugu Örn­u. 

Ásmundur Einar er sá ráð­herra sem fæstir van­treysta, eða 26 pró­sent, en van­traust á hann eykst þó um átta pró­sentu­stig. Af for­mönnum stjórn­ar­flokka van­treysta fæstir Katrínu, eða 37 pró­sent svar­enda, og 40 pró­sent segj­ast bera lítið traust til Sig­urðar Inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent