Allir stjórnarflokkarnir tapað fylgi frá síðustu kosningum en mælast með meirihluta

Stjórnarandstaðan sem heild hefur bætt við sig fylgi frá síðustu kosningum. Þar munar mestu um aukningu á stuðningi við Pírata en Miðflokkurinn hefur tapað fylgi. Vinstri græn mælast nú fimmti stærsti flokkur landsins.

Ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks endurnýjaði hjúskaparheitin eftir síðustu kosningar.
Ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks endurnýjaði hjúskaparheitin eftir síðustu kosningar.
Auglýsing

Stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa tapað sam­tals 4,2 pró­sentu­stiga fylgi frá síð­ustu kosn­ingum og mæl­ast nú með minnsta mögu­lega meiri­hluta­fylgi, eða 50,1 pró­sent. Þeir dala líka á milli mán­aða en í lok des­em­ber mæld­ist fylgi þeirra 51,6 pró­sent. Staða stjórn­ar­flokk­anna mælist mjög svipuð og hún gerði þegar fjórir mán­uðir voru liðnir af síð­asta kjör­tíma­bili.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur tapað tveimur pró­sentu­stigum af fylgi og mælist með 22,4 pró­sent stuðn­ing, en er samt sem áður stærsti flokkur lands­ins. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur tapað 0,3 pró­sentu­stigum af fylgi og mælist með 17 pró­sent stuðn­ing og Vinstri græn mæl­ast nú með 10,7 pró­sent fylgi, sem er 1,9 pró­sentu­stigum minna fylgi en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í sept­em­ber í fyrra. Vinstri græn mæl­ast nú fimmti stærsti flokk­ur­inn á þingi en voru annar stærsti eftir kosn­ing­arnar 2017 og þriðji stærsti eftir kosn­ing­arnar í fyrra­haust.

Þetta kemur fram í nýjum Þjóð­ar­púlsi Gallup sem greint er frá á síðu RÚV.

Þrír stjórn­ar­and­stöðu­flokkar hafa bætt við sig fylgi það sem af er kjör­tíma­bili. Píratar lang­mest, en fylgi þeirra mælist nú 12,5 pró­sent sem er 3,9 pró­sentu­stigum meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um. Sam­fylk­ingin hefur einnig bætt lít­il­lega við sig og mælist nú með 10,8 pró­sent fylgi og Við­reisn hefur bætt við sig rúmu pró­sentu­stigi og mælist með 9,4 pró­sent fylgi. Sam­tals hafa þessir þrír flokkar bætt við sig 5,9 pró­sentu­stigum frá síð­ustu kosn­ingum og myndu fá 32,7 pró­sent ef kosið yrði í dag og nið­ur­staðan yrði í sam­ræmi við könnun Gallup.

Auglýsing
Flokkur fólks­ins mælist með nákvæm­lega sama fylgi og hann fékk í síð­ustu kosn­ing­um, eða 8,8 pró­sent og eini stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn á þingi sem hefur dalað í fylgi er Mið­flokk­ur­inn, sem mælist nú með 3,7 pró­sent stuðn­ing. Allir stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir bæta við sig fylgi milli mán­aða.

Sós­í­alista­flokkur Íslands myndi fá 4,3 pró­sent atkvæða ef kosið yrði í dag, sam­kvæmt könnun Gallup, sem er aðeins meira en flokk­ur­inn fékk í kosn­ing­unum í fyrra­haust en sú aukn­ing er þó vel innan skekkju­marka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent