Alvogen sagt hafa boðið fjóra og hálfan milljarð í verksmiðju Actavis - tilboðinu hafnað

robert1.jpg
Auglýsing

Alvogen, sem er stýrt af Róberti Wess­mann fyrr­ver­andi for­stjóra Act­a­vis, gerði form­legt til­boð í verk­smiðju Act­a­vis í Hafn­ar­firði fyrir um tveimur vik­um. Alvogen vildi að hluti þeirrar fram­leiðslu sem fer fram í verk­smiðj­unni myndi fylgja með í kaup­un­um, og að sá hluti yrði íslenski mark­að­ur­inn. Til­boð­inu var ekki tek­ið. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag og þar segir að til­boðið hafi verið upp á tæpan fjóran og hálfan millj­arð króna.

Act­a­vis til­kynnti í byrjun viku að fyr­ir­tækið ætl­aði sér að loka umræddri verk­smiðju árið 2017. Um 300 manns munu missa vinn­una þegar það ger­ist.

Róbert segir í sam­tali við Frétta­blaðið að samn­ingar hafi ekki náðst. "Það eru auð­vitað dap­ur­leg tíð­indi ef þessi starf­semi leggst af en við teljum að hægt sé að finna rekstr­ar­grund­völl fyrir verk­smiðj­una hér á landi. Við höfum enn þá áhuga á að skoða kaup á þess­ari starf­semi en nauð­syn­legt er að ein­hver fram­leiðsla fylgi með í þeim kaup­um. Við höfðum hugsað okkur að íslenski mark­að­ur­inn fylgdi með."

Auglýsing

Ásdís Ýr Pét­urs­dótt­ir, sviðs­stjóri sam­skipta­sviðs Act­a­vis, segir það stefnu fyr­ir­tæk­is­ins að tjá sig ekki um sögu­sagn­ir.

Erlendir sjóðir eiga meiri­hlut­ann í Alvogen



Greint var frá því í júní að hlut­hafa­hóp­ur, undir for­ystu alþjóð­legu fjár­fest­inga­sjóð­anna CVC Capi­tal Partners og Tema­sek, hefði keypt meiri­hluta í Alvogen. Heild­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins í þeim við­skiptum var metið á 270 millj­arðar króna, en kaup­verðið var ekki gefið upp. Alþjóð­legar höf­uð­stöðvar Alvogen eru á Íslandi og um 80 manns vinna hjá fyr­ir­tæk­inu hér­lend­is, sem byggir meðal ann­ars Hátækni­setur í Vatns­mýr­inni um þessar mund­ir.




Fjár­fest­inga­sjóð­irnir CVC og Tema­sek eru í hópi stærstu fjár­fest­inga­sjóða í heim­inum í dag og nema heild­ar­um­svif þeirra um 290 millj­örðum banda­ríkja­dala eða um 38 þús­und millj­örðum íslenskra króna.




Róbert Wessman stýrði sem kunn­ugt er Act­a­vis um sjö ára skeið. Hann hætti hjá fyr­ir­tæk­inu í ágúst 2008 eftir deilur við Björgólf Thor Björg­ólfs­son, sem þá var stærsti eig­andi Act­a­v­is. Deilur þeirra hafa síðan verið tíðar á dag­skrá dóm­stóla hér á landi en þeir gerðu með sér sátt í nóv­em­ber 2012.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None