Vilja erlend flugfélög fljúga frá Akureyri eða Egilsstöðum?

flugstoeff.jpg
Auglýsing

For­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins í gær vakti athygli víða. Þar var sagt frá því að ríkið ætl­aði að liðka fyrir milli­landa­flugi frá Egils­stöðum og Akur­eyri með því að fella niður gjöld á flug­fé­lög fyrstu tvö árin og aðstoða svæðin við mark­aðs­setn­ingu með fjár­fram­lög­um. Þetta var haft eftir Matth­í­asi Ims­land, for­manns  starfs­hóps sem for­sæt­is­ráð­herra skip­aði í lok mars síð­ast­lið­ins til að kannaa mögu­leika á milli­landa­flugi frá lands­byggð­un­um. Matth­í­as, sem er dags dag­lega aðstoð­ar­maður félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra hefur mikla reynslu af flug­geir­anum eftir að hafa m.a. verið for­stjóri Iceland Express um ára­bil, sagði að  tekjur hins opin­bera af milli­landa­flug­inu yrðu nærri 1,3 millj­örðum króna árlega. Þetta kæmi fram í skýrslu sem unnin hefði verið fyrir hóp­inn á þeim þremur mán­uðum sem hann hefur starf­að.

Þessi nið­ur­staða Matth­í­asar og félaga er mjög í and­stöðu við frétt sem ferða­vef­ur­inn Túrist­i.is flutti í byrjun apríl síð­ast­lið­ins. Þar sagði frá því að vef­ur­inn hefði leitað upp­lýs­inga hjá Isa­via, sem rekur flug­velli lands­ins, um hvort erlend flug­fé­lög hefðu skoðað mögu­leik­ann á því að bjóða upp á flug til útlanda frá Akur­eyri eða Egils­stöð­um. Nið­ur­staðan væri að eng­inn slíkur áhugi hefði verið sýndur árum sam­an. Túrist­i.is var einnig verið í sam­bandi við tals­menn easyJet, Norweg­ian og þýsku flug­fé­lag­anna Air Berlin og Germanwings, sem sögðu öll að engin áform væru ­uppi um að hefja áætl­un­ar­flug til íslensku lands­byggð­ar­inn­ar.

Það er eðli­legt að spyrja sig, í ljósi yfir­lýs­inga Matth­í­asar í Frétta­blað­inu, hvað hafi breyst á síð­ustu tæpu þremur mán­uð­um?

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None