Andstaða við gjaldtöku í jarðgöngum mismikil eftir því hvaða flokk fólk kýs

Kjósendur Viðreisnar eru líklegastir til að styðja gjaldtöku í jarðgöngum en kjósendur Sósíalistaflokksins eru líklegastir til að vera andvígir gjaldtöku, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Maskínu á afstöðu til gjaldtöku í öllum jarðgöngum á Íslandi.

Alls segjast 55 prósent svarenda í könnun Maskínu fremur eða mjög andvíg gjaldtöku í öllum jarðgöngum á Íslandi.
Alls segjast 55 prósent svarenda í könnun Maskínu fremur eða mjög andvíg gjaldtöku í öllum jarðgöngum á Íslandi.
Auglýsing

Áform stjórn­valda um að stofna opin­bert hluta­fé­lag um upp­bygg­ingu og rekstur sam­göngu­inn­viða fela í sér gjald­töku í jarð­göngum á Íslandi. Í grein­ar­gerð með sam­göngu­á­ætlun 2020 til 2034 kom fram að stefnt væri að gjald­töku af umferð í jarð­göngum á Íslandi til að fjár­magna rekstur og við­hald gang­anna sem og hluta fram­kvæmda­kostn­aðar nýrra jarð­ganga.

Nú er í píp­unum að gera frum­varp til laga um heim­ild til að stofna áður­nefnt hluta­fé­lag og þar með hefja gjald­töku, líkt og greint var frá þann 18. júlí á sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

Í könnun Mask­ínu sem gerð var dag­ana 20. til 25. júlí kemur fram að meiri­hluti lands­manna er and­vígur gjald­töku í jarð­göng­um, en alls svör­uðu 55,1 pró­sent svar­enda, eða 565 manns, því til að vera mjög eða fremur and­víg gjald­töku. Spurt var: Hversu hlynnt(­ur) eða and­víg(­ur) ertu fyr­ir­hug­aðri gjald­töku í öllum jarð­göngum á Íslandi? Hlynntir eða mjög hlynntir gjald­töku voru 22,2 pró­sent svar­enda, alls 228 manns, en þeir sem merktu við svar­mögu­leik­ann í með­al­lagi voru ögn fleiri, 232 ein­stak­lingar eða 22,6 pró­sent svar­enda.

Auglýsing

Tals­verður munur á afstöðu eftir flokkum

Kjós­endur Við­reisnar eru lík­leg­astir til að styðja gjald­töku í jarð­göngum á Íslandi en kjós­endur Sós­í­alista­flokks­ins eru lík­leg­astir til að vera and­vígir gjald­töku, sam­kvæmt nið­ur­stöðum úr könnun Mask­ínu á afstöðu fólks til gjald­töku í öllum jarð­göngum á Íslandi.

Alls eru 78 pró­sent kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins mjög eða frekar and­víg gjald­töku, 16 pró­sent svara í með­al­lagi og aðeins 5 pró­sent segj­ast fremur hlynntir en eng­inn kjós­enda sós­í­alista seg­ist mjög hlynntur gjald­töku.

And­staða við gjald­tök­una er einnig yfir með­al­tali hjá kjós­endum Flokks fólks­ins, en 77,9 pró­sent kjós­enda flokks­ins eru mjög eða frekar and­vígir gjald­töku, 8,3 pró­sent svara í með­al­lagi og 13,9 pró­sent eru mjög eða fremur hlynnt gjald­töku.

Þá eru 64,3 pró­sent kjós­enda Mið­flokks­ins mjög eða frekar and­víg gjald­töku, 57 pró­sent kjós­enda Pírata og 54,7 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar.

Kjós­endur Við­reisnar jákvæð­ari en kjós­endur stjórn­ar­flokka

Svar­endur sem segj­ast kjósa Við­reisn eru lík­leg­astir til að vilja gjald­töku, en alls eru 38,7 pró­sent fremur eða mjög hlynnt gjald­töku í jarð­göng­um, 25 pró­sent í með­al­lagi og 36,3 pró­sent mjög eða fremur and­víg.

Stuðn­ingur kjós­enda stjórn­ar­flokk­anna við áform stjórn­valda um gjald­töku í jarð­göngum er tölu­vert minni en kjós­enda Við­reisn­ar.

Mestur stuðn­ingur er hjá kjós­endum VG, en úr þeim hópi segj­ast 32 pró­sent mjög eða fremur hlynnt áformum um gjald­töku, 31,2 pró­sent svara í með­al­lagi en 36,7 pró­sent kjós­enda VG eru mjög eða fremur and­víg áformunum um gjald­töku.

Af þeim sem segj­ast kjósa Sjálf­stæð­is­flokk eru 27,6 pró­sent fremur eða mjög hlynnt gjald­töku í jarð­göng­um, 28,2 pró­sent svara í með­al­lagi en 44,2 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks eru mjög eða fremur and­víg gjald­töku.

Meira en helm­ingur kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins, eða 51,5 pró­sent, seg­ist mjög eða fremur and­vígur gjald­töku, 23,4 pró­sent kjós­enda flokks­ins svara í með­al­lagi en innan við fjórð­ungur, eða 24,2 pró­sent, er fremur eða mjög hlynntur gjald­töku.

Mest and­staða við gjald­töku á Aust­ur­landi, Vest­ur­landi og Vest­fjörðum

Þegar afstaða svar­enda er skoðuð eftir búsetu sést að íbúar í Reykja­vík og nágranna­sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru lík­legri til að vera hlynntir áformum um gjald­töku en íbúar ann­ars staðar á land­inu. Mest and­staða við áformin er hins vegar á Vest­ur­landi, Vest­fjörðum og Aust­ur­landi.

Af íbúum Reykja­víkur í hópi svar­enda eru 25,8 pró­sent svar­enda mjög eða fremur hlynnt gjald­töku, 21,1 pró­sent í með­al­lagi og 53,1 pró­sent fremur eða mjög and­víg gjald­töku í jarð­göng­um. Að sama skapi eru 24,4 pró­sent íbúa nágranna­sveit­ar­fé­laga Reykja­víkur fremur eða mjög hlynnt gjald­töku, 24,6 pró­sent í með­al­lagi og 51 pró­sent fremur eða mjög and­víg.

Á Aust­ur­landi eru 72,2 pró­sent svar­enda fremur eða mjög and­víg gjald­töku og 75 pró­sent íbúa á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum eru fremur eða mjög and­víg. Aðeins 12,4 pró­sent svar­enda á Aust­ur­landi eru mjög eða fremur hlynnt gjald­töku og 15,3 pró­sent í með­al­lagi. And­staðan er enn skýr­ari á Vest­ur­landi og Vest­fjörðum en þar er eng­inn mjög hlynntur gjald­töku og 3,6 pró­sent svar­enda fremur hlynnt, en 21,3 pró­sent í með­al­lagi.

Könn­unin var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu sem er svo­kall­aður þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóð­skrá, á net­inu, að því er fram kemur á vef Mask­ínu. Alls svör­uðu 1069 könn­un­inni og gild svör voru 1025.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent