Annar fulltrúi Framsóknar hættur eftir ummæli um múslima

sveinbjorg-0-1.jpg
Auglýsing

Rafn Ein­ars­son hefur vikið sem full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins og flug­vall­ar­vina í hverf­is­ráði Breið­holts, eftir fund með odd­vitum flokks­ins í morg­un. Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir tekur sæti hans í ráð­inu. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá flokkn­um.

Stundin sagði í frétt í morgun frá­ um­mælum sem Rafn hefur við­haft á Face­book-­síðu sinni. Rafn hefur tjáð sig ítrekað um múslima, meðal ann­ars sagt að senda ætti alla múslima úr landi og að engum múslima virð­ist vera treystandi. Þá hefur hann sagt að Íslend­ingum sé illa við múslima.

Þessi ummæli hafa vakið mikla athygli og verið harð­lega gagn­rýnd víða. Ungir fram­sókn­ar­menn eru meðal þeirra sem for­dæmdu ummæli Rafns í morg­un, sögðu þau „gjör­sam­lega óásætt­an­leg og fara þvert gegn skýrri stefnu flokks­ins í mann­rétt­inda­mál­u­m.“

Auglýsing

Guð­finna Jóhanna Guð­munds­dóttir borg­ar­full­trúi sagði einnig á Face­book-­síðu sinni að hún væri ekki sam­mála ummælum Rafns. Í sam­tali við Vísi sagði hún að Rafn við­hefði ummælin ekki fyrir hönd flokks­ins. „Þetta er ekki í sam­ræmi við stefnu Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina. Við fylgjum stefnu flokks­ins en það að ein­stakir aðilar sem sitja í nefndum og ráðum tjái sig á Face­book þýðir ekki að þeir séu að tala fyrir hönd flokks­ins,“ sagði hún við Vísi og bætti því við að henni þættu ummælin skelfi­leg og væri mjög reið yfir þeim. Svein­björg Birna Svein­björns­dótt­ir, odd­viti flokks­ins, sagði við mbl.is að hún hefði ekki vitað af ummælum Rafns fyrr en í morg­un. Henni þyki þetta mið­ur.





Stjórn sam­bands ungra fram­sókn­ar­manna for­dæmir ummæli Rafns Ein­ars­sonar sem hann hefur látið falla um múslíma að und­an­fö...

Posted by Sam­band ungra fram­sókn­ar­manna on Wed­nes­day, April 15, 2015



Lára Hanna Ein­ars­dóttir benti á nokkur ummæli Rafns á Face­book í fyrra­sum­ar.

"I just have a quick react­ion to bullshit" stendur á mynd­inni hér efst á síðunni. Ég hef þó verið ótrúlega umburðarlynd...

Posted by Lára Hanna Ein­ars­dóttir on Fri­day, May 30, 2014

Stutt frá síð­ustu afsögn

Skammt er frá því að Fram­sókn og flug­vall­ar­vinir drógu skipun Gúst­afs Níels­sonar sem vara­manns í mann­réttinda­ráði borg­ar­innar til baka. Það var í jan­ú­ar. Gústaf hefur einnig tjáð sig á nei­kvæðan hátt um múslima og bygg­ingu mosku, en einnig um um sam­kyn­hneigða.

Þegar greint var frá því að Gústaf hefði verið skip­aður sögðu full­trúar Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina að alls konar raddir ættu að hljóma í mann­réttinda­ráði. Þegar skipun hans fékk mjög sterk við­brögð, meðal ann­ars gagn­rýndu tveir ráð­herrar hana harð­lega, var skipun Gúst­afs dregin til bak­a. „­Skipun vara­manns í mann­réttinda­ráð Reykja­vík­ur­borgar í gær er ekki í sam­ræmi við stefnu Fram­sókn­ar­flokks­ins og voru því mis­tök af okkar hálf­u,“ stóð í yfir­lýs­ing­u. ­Svein­björg Birna Svein­björns­dóttir sagði í við­tali við mbl.is eftir ákvörð­un­ina að ekki hefði orðið vinnu­friður um mál­efn­in, „og við vissum ekki af afstöðu til sam­kyn­hneigðra. Það er það sem breytt­ist.“ Hún minnt­ist hins vegar ekki á afstöðu Gúst­afs til múslima.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None