Annar hver farþegi frá Bandaríkjunum

Alls fóru tæplega 43 þúsund erlendir farþegar um Keflavíkurflugvöll í síðasta mánuði. Helmingur þeirra var frá Bandaríkjunum og einn tíundi þeirra var frá Póllandi.

Fjöldi ferðamanna er að aukast hratt aftur,  samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu.
Fjöldi ferðamanna er að aukast hratt aftur, samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu.
Auglýsing

Heild­ar­fjöldi erlendra ferða­manna jókst tölu­vert milli mán­aða í byrjun sum­ars, úr rúm­lega 14 þús­und í maí í tæp 43 þús­und í júní. Helm­ingur allra far­þeg­anna var frá Banda­ríkj­un­um. Þetta kemur fram í nýbirtum tölum Ferða­mála­stofu um fjölda far­þega á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Sam­kvæmt töl­unum fóru rúm­lega 13 þús­und íslenskir far­þegar um flug­stöð­ina í mán­uð­in­um, sem er þre­faldur fjöldi þeirra í maí. Hins vegar er fjöld­inn enn langt frá því að vera nálægt því sem hann var áður en far­ald­ur­inn skall á, en í júní 2019 fóru um 65 þús­und Íslend­ingar um Kefla­vík­ur­flug­völl.

Sömu sögu má segja um erlenda ferða­menn, þar sem fjöldi þeirra hefur um það bil þre­fald­ast á milli mán­aða, þrátt fyrir að vera enn langt undir venju­legum fjölda ferða­manna um flug­völl­inn að sumri til. Árið 2019 komu tæp­lega 195 þús­und ferða­menn til lands­ins í júní, en heild­ar­fjöldi þeirra í ár nam tæpum 43 þús­und­um.

Auglýsing

Langstærstur hluti ferða­mann­anna, eða um helm­ingur þeirra, kom frá Banda­ríkj­un­um. Til við­mið­unar var hlut­fall banda­rískra ferða­manna í júní 2019 um 31 pró­sent. Næst stærsti hóp­ur­inn kom frá Pól­landi, en sá hópur náði um níu pró­sentum af heild­ar­fjöld­an­um. Þjóð­verjar, Bretar og Frakkar koma þar á eft­ir, en þeir voru sam­tals um 12 pró­sent af heild­ar­fjölda ferða­manna.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa.

Ef miðað er við sama mánuð á árinu 2019 mælist enn 78 pró­senta sam­dráttur á fjölda erlendra ferða­manna, líkt og sést á mynd­inni hér að ofan. Hins vegar hefur dregið hratt og örugg­lega úr sam­drætt­inum á síð­ustu mán­uð­um, en hann mæld­ist 95 pró­sent í apríl síð­ast­liðn­um.

Eftir að far­ald­ur­inn skall á í mars í fyrra hefur fjöldi erlendra ferða­manna að minnsta kosti verið þremur fjórð­ungum minni en sam­sa­var­andi fjöldi á sama tíma árið 2019.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent