Apple og Facebook borga fyrir frystingu eggja starfsmanna

pregnant1.jpg
Auglýsing

Apple og Face­book, tvö af stærstu tækni­fyr­ir­tækjum ver­ald­ar, hafa brugðið á það ráð að bjóða kven­kyns starfs­mönnum sínum allt að 20 þús­und dali, um 2,4 millj­ónir króna, í styrk til að gera þeim kleift að frysta  úr sér egg. Til­gang­ur­inn er sá að gera konum sem vilja ein­beita sér að frama innan fyr­ir­tækj­anna kleift að gera það án þess að fórna mögu­leik­anum á því að eign­ast börn síðar á lífs­leið­inni.

Face­book er þegar búið að ýta stefn­unni úr vör og Apple mun gera slíkt hið sama í jan­úar næst­kom­andi. Business Insider greinir frá.

Alls starfa um átt­unda þús­und manns hjá Face­book. Starfs­menn Apple eru tölu­vert fleiri, eða um 98 þús­und tals­ins.

Auglýsing

Vilja laða fleiri konur í stjórn­un­ar­stöður



Um­deilt hefur verið á meðal fræði­manna á und­an­förnum árum hvort fryst­ing eggja sé góð hug­mynd og hvort hún skili þeim konum sem ákveða að fara þá leið til­ætl­uðum árangri þegar þær vilja loks frjóvg­ast. Það hefur hins vegar færst mjög í aukanna, sér­stak­lega í Banda­ríkj­un­um, að konur velji að fresta barn­eignum til að ná sér í mennt­un, frama eða öðrum mark­mið­um.

Þar sem frjó­semi kvenna minnkar með aldr­inum er talið lík­leg­ast til árang­urs að frysta egg kvenna á meðan að þær eru á besta barns­burð­ar­aldr­in­um, undir þrí­tugu. Þegar þær vilja síðan ganga með barn er eggj­unum komið fyrir leg­inu sem eld­ist ekki með sama hætti og egg eða eggja­leið­ar­ar. Með þess­ari aðferð geta konur borið börn vel fram á sex­tugs­ald­ur­inn.

Í umfjöllun Businessweek um málið kemur fram að rann­sókn sem NYU háskól­inn fram­kvæmdi í fyrra hafi leitt í ljós að þeim 183 konum sem tóku þátt og höfðu fryst egg sögð­ust 19 pró­sent að þeir hefðu lík­leg­ast átt börn fyrr en atvinnu­rek­andi þeirra hefði sýnt meiri sveigj­an­leika. Kís­ildal­ur­inn, heima­völlur helstu tækni­fyr­ir­tækja vest­ur­heims, er þekktur fyrir eft­ir­tek­ar­verðan skort á konum í áhrifa­stöð­um. Ein af rök­semdum Face­book og Apple fyrir þessu óvenju­lega skrefi er að fyr­ir­tækin von­ast til að laða að fleiri konur í stjórn­un­ar­stöð­ur. Fyr­ir­tækin eru, enn sem komið er, einu stóru atvinnu­rek­end­urnir í Banda­ríkj­unum sem brugðið hafa á það ráð að bjóða starfs­mönnum sínum upp á kostn­að­ar­þátt­töku í eggja­fryst­ingu vegna ástæðna sem eru ekki tengdar heilsu­fari.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None