Arðgreiðslur jukust í fyrra

Fjármagnstekjur Íslendinga drógust saman í fyrra, aðallega vegna lægri vaxta og minni söluhagnaðar. Þó jukust tekjur þeirra af arði töluvert á tímabilinu miðað við árið á undan.

Ríkisskattstjóri
Auglýsing

Tekjur Íslend­inga af arð­greiðslum juk­ust um fimm millj­arða króna í fyrra, á sama tíma og skatt­byrðin á fjár­magnstekjur þeirra lækk­aði. Þetta kemur fram í nýbirtumtölum frá Rík­is­skatt­stjóra um opin­bera álagn­ingu á ein­stak­linga.

Sam­kvæmt töl­unum námu fjár­magnstekjur ein­stak­linga hér á landi 115,7 millj­örðum króna í fyrra og dróg­ust þær saman um rúm­lega 6 millj­arða króna milli ára. Mesti sam­drátt­ur­inn var í vaxta­tekjum af inni­stæðum í bönk­um, en þær dróg­ust saman um tæp 43 pró­sent á tíma­bil­inu. Alls nam sam­drátt­ur­inn í vaxta­tekjum rúmum 6 millj­örðum króna

Tekjur af sölu­hagn­aði dróg­ust einnig saman tölu­vert, eða um fimm millj­arða króna, líkt og sjá má á mynd hér að neð­an. Þrátt fyrir það kemur fram í til­kynn­ingu fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins að fleiri fjöl­skyldur hafi talið fram sölu­hagnað í fyrra heldur en árið á und­an.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Fjármálaráðuneytið.

Langstærsti hluti fjár­magnstekna í fyrra var þó frá arð­greiðsl­um, en þær námu 51 millj­arði króna og juk­ust um 11,7 pró­sent milli ára. Sam­kvæmt fjár­mála­ráðu­neyt­inu skýrist hækk­unin að öllu leyti af auknum arði af erlendum hluta­bréf­um, en líkt og Kjarn­inn hefur áður fjallað um frest­uðu fjöl­mörg íslensk fyr­ir­tæki sínum arð­greiðslum vegna heims­far­ald­urs­ins.

Létt­ari skatt­byrði en dreif­ist á færri

Sam­hliða hærri arð­greiðslum minnk­aði skatt­byrði þeirra, þar sem ekki þarf lengur að greiða skatt af þeim ef upp­hæð þeirra eru undir frí­tekju­marki, sam­kvæmt nýjum lögum sem sam­þykkt voru á alþingi í lok síð­asta árs. Lögin fólu einnig í sér tvö­földun frí­tekju­marks­ins, úr 150 þús­und krónum í 300 þús­und krón­ur.

Auglýsing

Vegna laga­breyt­ing­anna hefur álagður fjár­magnstekju­skattur ein­stak­linga lækkað um 7,9 pró­sent milli ára. Heild­ar­hlut­fall skatt­heimtu af öllum fram­töldum fjár­magnstekjum hefur sömu­leiðis lækkað lít­il­lega, úr 19,8 pró­sentum í 19,3 pró­sent.

Þrátt fyrir lægri heild­ar­skatt­byrði hefur hækkun frí­tekju­marks­ins leitt til þess að færri greiða fjár­magnstekju­skatt en áður. Því hefur með­al­tal fjár­magnstekju­skatts á hverja fjöl­skyldu sem fær meiri tekjur en sem nemur frí­tekju­mark­inu hækk­að, úr rúmum 600 þús­und krónum árið 2019 tæp 900 þús­und krónur í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent