Ari Edwald, fyrrum forstjóri 365 miðla, hefur verið ráðinn nýr forstjóri Mjólkursamsölunnar (MS). Hann mun hefja störf 1. júlí næstkomandi og mun Einar Sigurðsson, núverandi forstjóri MS, láta af störfum frá sama tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MS.
Ari var um árabil forstjóri 365 miðla en hætti þar síðastliðið sumar og er enn á meðal eigenda fyrirtækisins. Þar áður starfaði hann fyrir Samtök Atvinnulífsins sem framkvæmdastjóri frá árinu 1999. Fyrir þann tíma starfaði hann sem aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra, sem aðstoðarmaður sjávarútvegsráðherra og sem ritstjóri Viðskiptablaðsins.
Ari er með Embættispróf í lögfræði frá H.Í. og MBA í rekstrarhagfræði frá University of San Francisco, McLaren School of Business.
Tilkynnt var um það í janúar að Einar Sigurðsson ætlaði að láta af störfum sem forstjóri 30. júní næstkomandi. Hann hefur verið forstjóri félagsins frá árinu 2009.