Verðbólguvæntingar til skamms tíma hækka töluvert

marpng-1.jpg
Auglýsing

„Nið­ur­stöður könn­un­ar­innar í maí gefa til kynna að verð­bólgu­vænt­ingar mark­aðs­að­ila til skamms tíma litið hafi hækkað tölu­vert frá jan­ú­ar­könnun bank­ans en að lang­tíma­vænt­ingar hafa lítið breyst,“ segir í frétt á vef Seðla­banka Íslands, um nið­ur­stöður könn­unar bank­ans þar sem verð­bólgu­vænt­ingar voru kann­að­ar.

Könnun á vænt­ingum mark­aðs­að­ila var fram­kvæmd dag­ana 4.-6. maí sl. Leitað var til 33 mark­aðs­að­ila á skulda­bréfa­mark­aði, þ.e. banka, líf­eyr­is­sjóða, verð­bréfa- og fjár­fest­ing­ar­sjóða, verð­bréfa­miðl­ana og fyr­ir­tækja með starfs­leyfi til eigna­stýr­ing­ar. Svör feng­ust frá 19 aðilum og var svar­hlut­fallið því 58%, að því er segir í frétt seðla­bank­ans.

Miðað við mið­gildi svara í könn­un­inni virð­ast þeir vænta um 1,5 pró­sent verð­bólgu á öðrum fjórð­ungi þessa árs og 1,6% á þriðja fjórð­ungi sem er um 0,1-0,5 pró­sentum meiri verð­bólga en þeir gerðu ráð fyrir í síð­ustu könnun í jan­ú­ar.

Auglýsing

Könn­unin bendir einnig til þess að vænt­ingar þeirra til verð­bólgu eftir eitt ár hafi hækkað um tæp­lega 1 pró­sentu, í 3,5 pró­sent. Vænt­ingar þeirra um árs­verð­bólgu eftir tvö ár voru hins vegar óbreyttar í þremur pró­sent­um. Vænt­ingar um verð­bólgu að með­al­tali næstu fimm ár og tíu ár hafa hækkað um 0,2 pró­sentur milli kann­ana og eru nú 3,2 pró­sent. Þá gefur könn­unin til kynna að mark­aðs­að­ilar vænta þess að gengi evru verði 150 krónur eftir eitt ár sem er svipað og í síð­ustu könnun bank­ans.

Miðað við mið­gildi svara í könn­un­inni vænta mark­aðs­að­ilar þess að veð­lána­vextir bank­ans verði hækk­aðir um 0,5 pró­sentur á þriðja fjórð­ungi þessa árs og um 0,25 pró­sentur til við­bótar á fyrsta fjórð­ungi þess næsta, í 6 pró­sent. Það eru 0,75 pró­sentum hærri vextir en þeir væntu í jan­ú­ar­könnun bank­ans. Þegar könn­unin var fram­kvæmd töldu um 60% svar­enda taum­hald pen­inga­stefn­unnar vera hæfi­legt sem er tals­vert hærra en í jan­úar þegar um 20% svar­enda töldu svo vera. Á sama tíma­bili hefur hlut­fall þeirra sem töldu taum­haldið of þétt eða alltof þétt lækkað um rúm­lega 45 pró­sent­ur, í tæp­lega 30%, segir í frétt seðla­bank­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None