Villan í Scarface til sölu fyrir litla 2,3 milljarða

A1mLv0Xy50L._SL1500_.jpg
Auglýsing

Villa eit­ur­lyfja­bar­óns­ins Tony Mont­ana, úr kvik­mynd­inni Scarface frá árinu 1983, í leik­stjórn Brian De Pal­ma, er til sölu fyrir 17,8 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða röska 2,3 millj­arða íslenskra króna. Frétta­mið­ill­inn Business Insider greinir frá mál­inu.

Hús­ið, sem er tæp­lega þús­und fer­metrar að flat­ar­máli, er búið fjórum svefn­her­bergjum og níu bað­her­bergj­um, og er umvafið persnerskum garði með ótal gos­brunn­um. Eignin hefur verið aug­lýst til sölu í á annað ár, en upp­haf­legi verð­mið­inn hljóð­aði upp á 35 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða tæpa 4,6 millj­arða króna. Loka­at­riði Scarface þar sem Mont­ana strá­fellir byssu­menn í tuga­tali áður en hann fellur í mik­illi kúlna­hríð átti til að mynda að eiga sér stað í hús­inu.

Glæpamaðurinn Tony Montana bjó vel, það verður ekki af honum tekið. MYND: Village Properties Glæpa­mað­ur­inn Tony Mont­ana bjó vel, það verður ekki af honum tek­ið. MYND: Village Properties

Auglýsing

Aðdá­endur Scarface vita auð­vitað mæta vel að Kúbverj­inn Tony Mont­ana, sem Al Pacino lék svo óað­finn­an­lega, byggði upp eit­ur­lyfja­veldi sitt í Miami í Florida ríki á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Villan sem var notuð við gerð kvik­mynd­ar­innar sem heim­ili Mont­ana, og er nú föl fyrir 2,3 millj­arða króna, er hins vegar stað­sett á vest­ur­strönd Banda­ríkj­anna, nánar til­tekið í Montecito í Kali­fórn­íu, um 145 kíló­metra vestur af Los Ang­el­es.

Eign­in hefur gengið í gegnum end­ur­bætur frá því að sagan um Scarface var kvik­mynduð og ku jafn­vel enn glæsi­legri í dag en árið 1983. Hægt er að skoða myndir af vill­unni í umfjöllun Business Insider hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None