Arion banki hefur gefið Landsspítalanum 150 milljónir króna sem spítalinn ætlar að nota til að kaupa ný sjúkrarúm og dýnur. Afhending gjafarinnar fór fram á Landsspitalanum við Hringbraut í dag. Í tilkynningu vegna þessa segir að brýn þörf sé innan spítalans á að endurnýja fjölda rúma sem komin er til ára sinna. "Með gjöfinni verður spítalanum gert mögulegt að kaupa 400 ný sjúkrarúm og dýnur á næstu tveimur árum og verða jafnframt gömlu rúmin tekin úr notkun. Á hverju ári eru legudagar sjúklinga á Landspítala um 220 þúsund og mun endurnýjun sjúkrarúma af þessari stærðargráðu hafa áhrif á þúsundir einstaklinga, bæði sjúklinga og starfsfólk. Gert er ráð fyrir að fyrstu sjúkrarúmin verði tekin í notkun eftir sex til átta vikur.
Gömlu og nýju rúmin.
Staðan á sjúkrarúmum spítalans var kortlögð í árslok 2013. Í ljós kom að af þeim 800 rúmum sem eru í notkun eru um 400 gömul járnrúm. Járnrúmin eru ýmist fótstigin eða rafknúin en rafvirkjar spítalans hafa séð um að rafvæða hluta af gömlu rúmunum til þess að bæta ástand þeirra. Aðstæður eru sérlega slæmar á geðsviði spítalans en þar er, auk gömlu rúmanna, einnig notast við bedda og svefnsófa fyrir sjúklinga."
Páll Matthíasson, forstjóri Landsspítalans, segir að spítalinn sé afar þakklátur Arion banka fyrir gjöfina. "Járnrúmin sem eru mörg hver hálfrar aldar gömul eru úreld og þjóna ekki sama hlutverki og nútíma rúm sem í dag eru lækningatæki. Gömlu rúmin eru of stutt fyrir marga sjúklinga okkar auk þess sem þau þola ekki mikla þyngd. Til viðbótar hefur verið erfitt fyrir starfsfólk að vinna við rúmin þar sem þau eru mörg hver rangskreið og erfitt er að hækka þau og lækka. Gjöf Arion banka mun breyta daglegu lífi sjúklinga og starfsfólks á spítalanum."
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka, segir að bankinn hafi viljað leggja sitt af mörkum til samélagsins.
„Við hjá Arion banka höfum í gegnum tíðina stutt við heilbrigðisstofnanir víða um land með tækjagjöfum, þannig að þetta málefni er okkur sérstaklega hugleikið. Nú þegar rekstur og uppbygging bankans gengur vel þá viljum við láta gott af okkur leiða með þessum hætti. Við höfum undanfarið átt samstarf við Landspítala á sviði straumlínustjórnunar og kynnst spítalanum ágætlega. Við fengum fregnir af afleitu ástandi sjúkrarúma og að það kæmi niður á bæði sjúklingum og starfsfólki. Það er okkur því sérstaklega ánægjulegt að geta lagt okkar af mörkum til að bæta líðan sjúklinga og um leið starfsaðstæður starfsfólks spítalans.“