Arion býður kaupendum fyrstu íbúðar hærra lánshlutfall

10191443684_b9a99b5758_z.jpg
Auglýsing

Arion banki hyggst bjóða þeim við­skipta­vinum sínum sem festa kaup á sinni fyrstu íbúð hærra láns­hlut­fall en öðrum við­skipta­vin­um, og fellir einnig niður lán­töku­gjald. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá bank­an­um. ­Arion banki fetar þannig í fót­spor hinna bank­anna.

Almennt veitir Arion banki lán fyrir 80 pró­sentum af mark­aðsvirði fast­eigna. Þannig er það einnig í Íslands­banka, en hjá Lands­bank­anum er hlut­fallið allt að 85 pró­sent á öllum lán­um.

Mis­mun­andi kvaðir eru á lán­unum eftir bönk­um. Nú býð­ur­ ­Arion banki 85 pró­senta lán, svo lengi sem upp­hæð láns­ins er undir 30 millj­ónum króna og að minnsta kosti fjórð­ungur láns­ins þarf að vera óverð­tryggð­ur. Íslands­banki lánar að hámarki 1,5 milljón króna til við­bótar við 80 pró­sent­in, en lánar þó aldrei meira en 90 pró­sent af kaup­verði. Við­bót­ar­lánið er óverð­tryggt og að hámarki til tíu ára.

Auglýsing

Þá hefur Arion banki fellt niður lán­töku­gjald, sem nemur einu pró­senti af láns­fjár­hæð­inni, við fyrstu kaup. Lands­bank­inn gerir slíkt hið sama, en hjá Íslands­banka er veittur 50 pró­senta afsláttur af lán­töku­gjald­inu.

Arion stærstur en Lands­bank­inn bætti mestu við sig



Í frétta­skýr­ingu um íbúða­lána­mark­að­inn, sem birt­ist í Kjarn­anum nýverið, kemur fram að miðað við árs­reikn­inga Arion banka juk­ust útlán um 13,6 millj­arða á síð­asta ári. Bank­inn er langstærstur við­skipta­bank­anna, en heildar­í­búða­lán til ein­stak­linga námu 271,6 millj­örðum króna um síð­ustu ára­mót. Sú stærð ræðst meðal ann­ars af því að Kaup­þing, sem Arion banki byggir á, var stór­tæk­ari en aðrir við­skipta­bankar fyrir hrun að ná til sín við­skiptum íbúð­ar­kaup­enda. Auk þess yfir­tók bank­inn íbúða­lán á fimmta þús­und ein­stak­linga þegar bank­inn tók yfir 56 millj­arða króna útlána­safn frá slita­stjórn Dróma í lok árs 2013. Um var að ræða lán sem áður til­heyrðu Spron, Frjálsa fjár­fest­ing­ar­bank­anum og eigna­safni Seðla­banka Íslands.

Lands­bank­inn hefur hins vegar aukið útlán mikið und­an­far­ið, og lagt mikið í aug­lýs­ingar sem bein­ast að fyrstu kaup­end­um. Íbúða­lán juk­ust um 39 millj­arða hjá bank­anum í fyrra, og nema um 164,5 millj­örðum króna. Hann á ekki langt í land með að ná Íslands­banka. Íslands­banki bætti við sig um ell­efu millj­örðum króna af íbúða­lánum í fyrra og heild­ar­um­fang íbúða­lána til ein­stak­linga námu 187 millj­örðum króna í fyrra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None