Árni Múli Jónasson hefur verið ráðinn pólitískur ráðgjafi hjá þingflokki Bjartrar framtíðar. Hann mun jafnframt gegna stöðu sem aðstoðarmaður Guðmundar Steingrímssonar, formanns Bjartrar framtíðar.
Árni Múli er lögfræðingur að mennt og hefur meðal annars starfað sem fiskistofustjóri, bæjarstjóri á Akranesi og hjá umboðsmanni Alþingis. Hann hefur sérhæft sig í mannréttindalögfræði og hefur unnið að þeim málum í stjórn Íslandsdeildar Amnesty International og hjá Rauða krossi Íslands, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá framkvæmdastjóra Bjartrar framtíðar.