Árni Páll: Átökin á síðasta landsfundi dýrkeypt og finnur fyrir þrýstingi innan flokks

16687912498_270dd2aa3a_c.jpg
Auglýsing

Auglýsing

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að átökin á síð­asta land­fundi flokks­ins hafi verið honum dýr­keypt. Skýr­ingar á miklu fylgis­tapi Sam­fylk­ing­ar­innar und­an­farin miss­eri sé þó aðal­lega að finna í upp­gangi Pírata. Hann segir þrýst­ing innan flokks­ins um að blása til nýs lands­fund­ar, en sá síð­ast fór fram í mars á þessu ári, og seg­ist til­bú­inn að leggja störf sín í dóm flokks­systk­ina. Þetta kom fram í við­tali Hall­gríms Thor­steins­sonar við Árna Pál í Helg­ar­út­gáf­unni á Rás 1 í morg­un. 

Síð­asti lands­fundur Sam­fylk­ing­ar­innar fór fram í mars síð­ast­liðn­um. Þar bauð Sig­ríður Ingi­björg Inga­dóttir sig fram til for­manns gegn sitj­andi for­manni, Árna Páli Árna­syni. Þar sem fram­boðið barst skömmu ­fyrir lands­fund gátu ein­ungis lands­full­trúar kosið í for­manns­kosn­ing­unum í stað þess að alls­herj­ar­at­kvæða­greiðsla færi fram sem allir flokks­menn gætu tekið þátt í. Nið­ur­staðan varð sú að Árni Páll sigr­aði með einu atkvæði, hlaut 241 atkvæði en Sig­ríður Ingi­björg 240.

Árni Páll tók við af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar árið 2013. Hann var kjör­inn í alls­herj­ar­kosn­ingu og hlaut afger­andi kosn­ingu í bar­átt­unni um for­manns­stól­inn við Guð­bjart Hann­es­son. ­Sam­fylk­ingin beið hins vegar afhroð í síð­ustu Alþing­is­kosn­ing­um, undir stjórn Árna Páls, þegar flokk­ur­inn hlaut 12,9 pró­sent atkvæða og tap­aði ell­efu þing­mönn­um. Aldrei nokkru sinni í sögu íslenskra stjórn­mála hefur einn flokkur tapað jafn miklu fylgi á milli kosn­inga og Sam­fylk­ingin gerði á milli áranna 2009 og 2013.

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar mælist nú 11,4 pró­sent, eða minna en í síð­ustu kosn­ing­um. Og það hefur mælst stöðugt mjög lágt í öllum könn­unum sem gerðar hafa verið und­an­farna mán­uði.

Í Helg­ar­út­gáf­unni sagði Árni Páll að í fyrra­haust hafi flokk­ur­inn verið að mæl­ast með um 20 pró­sent fylgi. Frá þeim tíma hafi orðið gríð­ar­leg fylg­is­sveifla til Pírat­ar. "Hún hittir okkur nú sein­ast fyrir af öllum flokk­un­um, en hittir okkur á end­an­um. Síðan er ekk­ert hægt að líta fram­hjá því að lands­fund­ur­inn var ekki til þess að styrkja stuðn­ing okkar meðal þjóð­ar­inn­ar. Við súnkuðum í fylgi í könn­unum eftir hann. Við­fangs­efni okkar hlýtur að vera að draga lær­dóm af þess­ari stöð­u."

Hann sagð­ist verða var við þrýst­ing innan Sam­fylk­ing­ar­innar um að halda nýjan lands­fund og að hann væri algjör­lega til­bú­inn til þess að leggja sín störf í dóm flokks­manna. "Þetta snýst ekki um annað en það að á meðan ég tel mig hafa hug­myndir og sýn um það hvert eigi að fara með flokk­inn, sem flokks­menn deila, þá sit ég sem for­maður og ef flokks­menn hætta að styðja mína sýn og vilja ein­hverja aðra, þá vænt­an­lega verð ég ekki lengur for­mað­ur. Það er nú eðli lýð­ræð­is­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None