Árni Páll: Langtímaleigusalar fái skattaafslátt

arnipall.jpg
Auglýsing

Sam­fylk­ingin vill að ríkið stuðli að auknu fram­boði á mark­aði leigu­hús­næðis með því að veita skatta­af­slátt til ein­stak­linga vegna útleigu einnar íbúðar til að lág­marki 12 mán­aða. Þetta segir Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. „Slík aðgerð gæti aukið fram­boð leigu­hús­næðis gríð­ar­lega. Um 4.000 íbúðir eru í leigu til ferða­manna í gegnum vef­síð­una Air­bnb. Ef ein­ungis hluti þeirra færi í lang­tíma­leigu yrði stórum áfanga náð. Aðrir sem ekki eru að leigja út í dag, gætu séð sér leik á borði, ef þessi laga­breyt­ing yrði að veru­leika,“ segir Árni Páll.

Í grein­inni fjallar Árni Páll um ástandið á leigu­mark­aði í dag og segir það alvar­legt. Eng­inn fái íbúð á boð­legum kjörum og litlar íbúðir á besta stað séu ill­fá­an­legar og dýr­ar. Mik­il­væg­ast sé að fjölga íbúðum en auk þess leggur Árni Páll til að leigusalar fái skatta­af­slátt ef þeir leigja íbúð­ina til langs tíma.

„Ásókn ferða­manna í skamm­tíma­leigu veldur skorti á íbúðum á almennum leigu­mark­aði. Fyrir því finna náms­menn og aðrir sem þurfa á leigu­hús­næði að halda. Tekjur af leigu til ferða­manna eru enda miklu meiri en af leigu á almennum mark­aði.

Auglýsing

En á sama tíma er líka fólk sem á íbúðir eða laus her­bergi sem það er ekki til­búið að leigja til lengri tíma, vegna þess að lítið fæst upp úr því.“

Stofna ­sam­tök um skamm­tíma­leigu á heim­ilum



Eins og Kjarn­inn hefur fjallað um þá er víðar deilt um áhrif skamm­tíma­húsa­leigu til ferða­manna á almennt leigu­verð. Í San Francisco vilja yfir­völd ­setja þak á fjölda gistin­átta sem leigja má í gegnum Air­bnb og aðrar leigu­síður. Sam­bæri­legar hug­myndir hafa verið ræddar á Alþingi.

Margir eiga hags­muna að gæta. Nærri tvö þús­und íbúðir í Reykja­vík eru til leigu í gegnum Air­bnb og um fjögur þús­und á land­inu öllu. Leigusalar eru því marg­ir.

Í gær var fjöl­miðlum send til­kynn­ing um stofnun sam­taka um skamm­tíma­leigu á heim­il­um. Eng­inn er skrif­aður fyrir til­kynn­ing­unni en í henni segir að stofn­fundur verði hald­inn í höf­uð­stöðvum Startup Reykja­vík sunnu­dag­inn 30. ágúst. „­Mark­mið sam­tak­anna er að vinna að sam­eig­in­legum hags­muna­málum þeira ­sem bjóða upp á skamm­tíma­leigu á heim­il­um, íbúðum og/eða frí­stund­ar­heim­ilum á Ísland­i,“ segir í til­kynn­ing­unni. Sam­tökin ætla að ná settum mark­miðum meðal ann­ars því að „stuðla að því að skamm­tíma­leiga verði við­ur­kenndur val­mögu­leik­i ­fyrir ferða­menn á Íslandi“ og „beita sér fyrir því að lög­gjöf um skamm­tímagist­ingu á heim­il­u­m, ­í­búðum og eða frí­stund­ar­heim­ilum á Íslandi geri ein­stak­ling­um kleift að bjóða upp á þessa teg­und með ein­földum hætti“ auk þess sem sam­tökin hyggj­ast „vinna með yfir­völdum til að auka gagn­sæi á mark­að­i“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None