Ásdís Halla og Sigríður Auður sækja um að verða ráðuneytisstjóri hjá Áslaugu Örnu

Á meðal þeirra átta sem sóttu um starf ráðuneytisstjóra í nýju ráðuneyti er sú sem var sett sem ráðuneytisstjóri þar nokkrum dögum áður sem staðan var auglýst og ráðuneytisstjóri í öðru ráðuneyti.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Auglýsing

Átta manns sóttu um um emb­ætti ráðu­neyt­is­stjóra háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins sem aug­lýst var 3. febr­ú­ar, en umsókn­ar­frestur rann út í lok síð­asta mán­að­ar. Á meðal þeirra sem sóttu um stöð­una er Ásdís Halla Braga­dótt­ir, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garða­bæ.

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, sem fer með ráðu­neytið í rík­is­stjórn, setti hana sem ráðu­neyt­is­stjóra til þriggja mán­aða nokkrum dögum áður en að staðan var aug­lýst laus til umsókn­ar. Áður hafði Ásdís Halla verið ráð­inn verk­efna­stjóri við und­ir­bún­ing ráðu­neyt­is­ins, sem er nýtt, í byrjun des­em­ber í fyrra. 

Auglýsing
Á meðal ann­arra umsækj­enda er Sig­ríður Auður Arn­ar­dótt­ir, ráðu­neyt­is­stjóri í umhverf­is-, orku- og loft­lags­ráðu­neyt­inu. Hún hefur gegnt því starfi í sjö ár. 

Aðrir umsækj­endur eru Borg­hildur Ein­ars­dóttir for­stjóri, Elmar Hall­gríms Hall­gríms­son fram­kvæmda­stjóri, Huld Magn­ús­dóttir fram­kvæmda­stjóri, Katrín Olga Jóhann­es­dóttir fram­kvæmda­stjóri, Ragn­hildur Ágústs­dóttir sölu­stjóri og Sig­urður Erlings­son við­skipta­fræð­ing­ur.

Skipað verður í starfið til fimm ára frá 1. maí næst­kom­andi. Þriggja manna nefnd hefur verið falið að meta hæfni umsækj­enda og skila skýrslu til ráð­herra. Í henni sitja Mar­grét Ein­ars­dótt­ir, sem er for­mað­ur, Gunnar Björns­son og Heiðrún Jóns­dótt­ir. Guð­mundur Árna­son, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, er í umboði ráð­herra settur ráðu­neyt­is­stjóri til þess að ann­ast skip­un­ar­ferl­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent