Ásdís Halla Bragadóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Garðabæ, verður sett ráðuneytisstjóri háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytis frá 1. febrúar næstkomandi. Setningin er tímabundin til þriggja mánaða á meðan auglýst er eftir ráðuneytisstjóra fyrir hið nýja ráðuneyti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. Ásdís Halla var ráðin verkefnisstjóri við undirbúning ráðuneytisins í byrjun desember síðastliðins.
Það er Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem setur í embættið. Ákvörðunin er tekin á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þar sem kveðið er á um heimild um setningu, að því er fram kemur hjá ráðuneytinu.
„Hlutverk nýs ráðuneytis er kynnt í forsetaúrskurði sem birtur er í dag en hann öðlast gildi 1. febrúar 2022. Þann sama dag tekur ráðuneytið til starfa. Með stofnun nýs ráðuneytis er ætlunin að tengja betur háskóla, vísindi, iðnað og nýsköpun.
Það endurspeglar áherslur ríkisstjórnarinnar á að takast á við áskoranir fjórðu iðnbyltingarinnar og nýta hraðfleygar tæknibreytingar og stafræna umbyltingu í þágu samfélagsins alls, líkt og segir í þingsályktunartillögu um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þar segir jafnframt að á 21. öldinni hafi orðið bylting í þekkingariðnaði þar sem vísindi og rannsóknir á háskólastigi hafa gegnt lykilhlutverki. Stjórnkerfi hvers ríkis þurfi að laga skipulag sitt að þeim veruleika,“ segir í tilkynningunni.