Ásgeir hættir hjá Arion banka og verður forstjóri SKEL

Aðstoðarbankastjóri Arion banka hyggst láta af störfum þar á næstu dögum, en hann hefur verið ráðinn forstjóri SKEL fjárfestingarfélags.

Asgehri.jpg
Auglýsing

Ásgeir H. Reyk­fjörð Gylfa­son, sem verið hefur aðstoð­ar­banka­stjóri og fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs Arion banka frá árinu 2019, hefur verið ráð­inn for­stjóri SKEL fjár­fest­inga­fé­lags hf.

Frá þessu segir í til­kynn­ingum frá SKEL og Arion banka í morg­un, en í til­kynn­ingu Arion kemur fram að Ásgeir muni láta af störfum hjá bank­anum á næstu dög­um.

Í til­kynn­ingu frá SKEL til Kaup­hallar er einnig sagt frá því að Magnús Ingi Ein­ars­son hafi verið ráð­inn fjár­mála­stjóri félags­ins.

Auglýsing

Þar er haft eftir Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni stjórn­ar­for­manni SKEL að það sé mik­ill fengur í að fá þá Ásgeir og Magnús til liðs við félag­ið.

„Þessir tveir öfl­ugu aðilar munu hrinda í fram­kvæmd áfram­hald­andi umbreyt­ingu félags­ins, þar sem lögð verður áhersla á fjár­fest­ingar í fyr­ir­tækjum og þróun fyr­ir­tækja, sem hafa meðal ann­ars að leið­ar­ljósi að ein­falda fólki og fyr­ir­tækjum líf­ið,“ er haft eftir Jóni Ásgeiri.

Iða Brá verður aðstoð­ar­banka­stjóri

Iða Brá Bene­dikts­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri við­skipta­banka­sviðs, mun nú jafn­framt gegna starfi aðstoð­ar­banka­stjóra hjá Arion. Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og for­verum frá árinu 1999. Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bank­ans, en hún var fram­kvæmda­stjóri fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs frá 2016 til 2017 þegar hún tók við starfi fram­kvæmda­stjóra við­skipta­banka­sviðs.

Hún er við­skipta­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og með MSc í fjár­málum frá Erasmus Gradu­ate School of Business í Hollandi. Iða Brá er einnig með próf í verð­bréfa­við­skipt­um.

Hákon Hrafn Grön­dal, lána­stjóri á fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviði, hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tækja- og fjár­fest­ing­ar­banka­sviðs og hefur tekið sæti í fram­kvæmda­stjórn bank­ans, sam­kvæmt til­kynn­ingu Arion. Hákon er við­skipta­fræð­ingur frá Griffith Uni­versity, með MSc í fjár­málum fyr­ir­tækja frá Háskóla Íslands og með próf í verð­bréfa­við­skipt­um.

Fram­kvæmda­stjóri mark­aða lætur einnig af störfum

Arion banki segir einnig frá því í dag að Mar­grét Sveins­dótt­ir, sem verið hefur fram­kvæmda­stjóri eigna­stýr­ingar og síðar mark­aða frá árinu 2009, muni láta af störfum á næstu vik­um.

Jóhann Möll­er, sem gegnt hefur starfi fram­kvæmda­stjóra Stefnis und­an­farin ár, hefur verið ráð­inn fram­kvæmda­stjóri mark­aða og mun taka sæti í fram­kvæmda­stjórn Arion banka á næstu vik­um.

Jóhann hefur verið fram­kvæmda­stjóri Stefnis frá árinu 2020 og starfað á fjár­mála­mark­aði í rúm 20 ár. Jóhann er við­skipta­fræð­ingur frá Háskóla Íslands og með próf í verð­bréfa­við­skipt­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent