ASÍ segir stóreignaskatt geta skilað ríkissjóði meira en 20 milljörðum króna

Fjármagnstekjuskattur er ekki nægur einn og sér til að draga úr eignaójöfnuði, að mati ASÍ. Samtökin segja að rökin fyrir eignaskatti séu sterk í löndum þar sem skattlagning á fjármagnstekjur er lág.

Drífa Snædal, forseti ASÍ
Drífa Snædal, forseti ASÍ
Auglýsing

Sterk rök eru fyrir skatt­lagn­ingu á eignir hér­lendis til að sporna gegn vax­andi eigna­ó­jöfn­uði, þar sem fjár­magnstekju­skattur er lág­ur. Skyn­sam­lega útfærður stór­eigna­skattur gæti skilað rík­is­sjóði um 20 millj­örðum króna. Þetta kemur fram í nýbirtri skýrslu ASÍ um skatt­lagn­ingu fjár­magns og auð­linda­gjöld.

Ójafn­ari skatt­byrði eftir afnám auð­legð­ar­skatts

Sam­kvæmt skýrsl­unni ýtti afnám auð­legð­ar­skatts undir ójöfnuð í sam­fé­lag­inu og mis­skipt­ingu eigna. Án hans er skatt­byrði þeirra allra tekju­hæstu lægri en skatt­byrði ann­arra tekju­hárra, þar sem skattur á fjár­magnstekjur er lægri en skatt­lagn­ing launa. Með auð­legð­ar­skatti var því aftur á móti við­haldið að skatt­kerfið væri stig­vax­andi upp alla tekju­dreif­ing­una.

Sjá má nokkra breyt­ingu í skatt­byrði eftir tekju­hópum á milli áranna 2013, þegar auð­legð­ar­skatt­ur­inn var enn við lýði, og 2019, sam­kvæmt skýrsl­unni. Á meðan hlut­falls­leg skatt­byrði efri milli­tekju­hópa hefur nokkurn veg­inn hald­ist óbreytt hefur skatt­byrði rík­asta pró­sents­ins lækkað tölu­vert og skatt­byrði tekju­lægri helm­ings­ins hækk­að.

Auglýsing

ASÍ segir Efna­hags- og fram­fara­stofn­un­ina (OECD) hafa lagt áherslu á mik­il­vægi þess að skatt­lagn­ing í heild sinni sé stig­vax­andi, þannig að skatt­byrðin sé þyngst hjá þeim tekju­hæstu. Sömu­leiðis segja sam­tökin að OECD telji rök fyrir eigna­skatti sterk­ari ef fjár­magnstekju­skattur er lágur og nefni þar Norð­ur­lönd sér­stak­lega í því til­liti.

Á síð­asta árinu sem auð­legð­ar­skatt­ur­inn var í gildi nam hann 12,7 millj­örðum króna á núver­andi verð­lagi, sam­kvæmt skýrslu­höf­und­un­um. Séu tekjur rík­is­sjóðs af eigna­skött­unum upp­færðar miðað við eigna­stöðu heim­il­anna hefði hann hins vegar skilað rík­is­sjóði á bil­inu 20-28 millj­örðum króna í tekjur á hverju ári núna, væri hann enn við lýði.

Gamlir eigna­skattar illa hann­aðir

Í skýrsl­unni er þó minnst á að margar Evr­ópu­þjóðir hafi afnumið eign­ar­skatta á síð­ustu ára­tug­um, aðal­lega af ótta við fjár­magns­flótta. Einnig voru tekj­urnar af slíkum sköttum gjarnan minni en vonir stóðu til, vegna umfangs­mik­illar skatta­snið­göngu og skattsvika.

Aftur á móti segja skýrslu­höf­undar að eigna­skattar hafi oft verið illa hann­aðir á þessum tíma og ein­falt hafi verið að kom­ast hjá því að greiða þá. Fjöl­breyttir frá­drátt­ar­liðir gerðu að verkum að skatt­greið­endur gátu aðlagað eigna­söfn til þess að draga úr skatt­greiðsl­um. Í ljósi þess telja þeir það vera mik­il­vægt að skatt­lagn­ing á eignir sé vel hönn­uð, verði hún að veru­leika aft­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent