Ásmundur Einar er eini ráðherrann sem meirihluti þjóðarinnar treystir

Bjarni Benediktsson hefur á undanförnum mánuðum farið frá því að vera sá ráðherra Sjálfstæðisflokks sem flestir treysta í það að skrapa botninn í trausti ásamt Jóni Gunnarssyni. Traust til leiðtoga allra stjórnarflokkanna fellur skarpt milli mælinga.

Flestir aðspurðra treysta Ásmundi, en fæstir Bjarna.
Flestir aðspurðra treysta Ásmundi, en fæstir Bjarna.
Auglýsing

Ásmundur Einar Daða­son mennta- og barna­mála­ráð­herra er eini ráð­herr­ann í rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks, Sjálf­stæð­is­flokks og Vinstri grænna sem meiri­hluti þjóð­ar­innar ber mikið traust til, sam­kvæmt nýrri könnun frá Mask­ínu um traust til ráð­herra. Traust til Ásmundar Ein­ars hefur þó dreg­ist saman um 11 pró­sentu­stig und­an­farið miss­eri og mælist nú 52 pró­sent.

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra er á móti sá ráð­herra sem flestir bera lítið traust til, en 70,7 pró­sent lands­manna van­treysta Bjarna, sam­kvæmt nið­ur­stöðum Mask­ínu. Rúm 18 pró­sent aðspurðra sögð­ust bera mikið traust til Bjarna, ögn fleiri en sögð­ust treysta Jóni Gunn­ars­syni dóms­mála­ráð­herra, sem er sá ráð­herra sem fæstir bera traust til.

Er Mask­ína spurði þess­arar sömu spurn­ingar skömmu eftir að ný rík­is­stjórn tók við kefl­inu undir lok síð­asta árs voru þeir ráð­herrar sem nutu mik­ils trausts yfir helm­ings svar­enda þrír tals­ins, en bæði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Sig­urður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra hafa fallið úr þeim flokki.

Traust til Katrínar hefur rýrnað um 17 pró­sentu­stig og segj­ast nú 45 pró­sent bera mikið traust til hennar en traust til Sig­urðar Inga hefur dreg­ist saman um heil 22 pró­sentu­stig og 33 pró­sent segj­ast nú treysta Sig­urði Inga.

Auglýsing

Willum Þór Þórs­son heil­brigð­is­ráð­herra nýtur 41 pró­sent trausts, Lilja Alfreðs­dóttir við­skipta- og menn­ing­ar­ráð­herra nýtur 33 pró­sent trausts, þau Svan­dís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son orku- og umhverf­is­mála­ráð­herra njóta um 31 pró­sent trausts og pró­sentu­stigi færri segj­ast treysta Þór­dísi Kol­brúnu R. Gylfa­dóttur utan­rík­is­ráð­herra.

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra nýtur mik­ils traust um 26 pró­sent aðspurðra, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra nýtur 22 pró­senta trausts og svo reka þeir Bjarni og Jón lest­ina, sem áður seg­ir.

Tæp 24 pró­sent þeirra sem kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn í haust van­treysta Bjarna

Í skýrslu frá Mask­ínu með nið­ur­broti um traust mis­mun­andi þjóð­fé­lags­hópa til hvers og eins ráð­herra má sjá hvernig traust til ráð­herra skipt­ist eftir stjórn­mála­skoð­unum svar­enda.

Bæði er hægt að glöggva sig á afstöðu svar­enda eftir því hvernig þeir segj­ast ætla sér að kjósa til Alþingis ef kosið væri dag og einnig eftir því hvernig þeir segj­ast hafa kosið til Alþingis síð­asta haust.

Í hópi þeirra sem kusu Sjálf­stæð­is­flokk­inn síð­asta haust segj­ast tæp 27 pró­sent bera mjög mikið traust til Bjarna Bene­dikts­sonar og 34 pró­sent til við­bótar segj­ast bera frekar mikið traust til flokks­for­manns­ins.

Rúm 15 pró­sent svara því til að þau beri hvorki mikið né lítið traust til Bjarna, en 23,8 pró­sent þeirra sem segj­ast hafa kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn síð­asta haust segj­ast nú bera frekar lítið eða mjög lítið traust til Bjarna.

Könn­unin var lögð fyrir Þjóð­gátt Mask­ínu, sem er þjóð­hópur fólks (e. pan­el) á net­inu, dreg­inn með til­viljun úr Þjóð­skrá. Alls voru svar­endur 929, en þeir eru alls staðar að af land­inu og á aldr­inum 18 ára og eldri. Gögnin eru vigtuð sam­kvæmt Þjóð­skrá og end­ur­spegla því þjóð­ina prýði­lega. Könn­unin fór fram dag­ana 20. til 25. apríl 2022.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent