Áttunda umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta fer fram um helgina. Eins og þeir vita sem fylgjast með enska boltanum, trónir Chelsea á toppi deildarinnar, hefur hlotið nítján stig eftir sjö leiki, með fimm stiga forskot á Englandsmeistara Manchester City.
Stórleikur umferðarinnar fer fram í hádeginu í dag á Etihad leikvanginum í Manchester, þar sem heimamenn í Manchester City taka á móti Tottenham. Annars verður að segjast eins og er að það er fátt um fína drætti í enska boltanum um helgina, hvað stórleiki varðar.
Kjarninn fékk engu að síður Atla Fannar Bjarkason, ristjóra Nútímans, til að spá fyrir um úrslit leikjanna í áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
Manchester City 3- 0 Tottenham
Yaya Toure, vélmennið á miðjunni hjá Man City, hefur verið lykilmaður hjá liðinu undanfarin ár, en hann hefur farið heldur rólega af stað í ensku deildinni í vetur.
Tottenham er fyrir ensku knattspyrnuna það sem Fanta Lemon er fyrir gosdrykki: Einhvern veginn aldrei til staðar nema örsjaldan og er þá ógeðslega gott. Fanta Lemon er ekki fáanlegt í dag og City tekur þennan leik auðveldlega.
Arsenal 0-0 Hull
Meiðslalistinn hjá Arsenal er langur, en miklar vonir eru nú bundnar við að Jack Wilshere stígi upp og sýni sitt rétta andlit.
Ég efast reyndar um að Arsenal nái í lið þar sem meiðslalistinn þeirra er lengri en gestalistinn hans Ingós. Þetta verður leiðinlegur leikur.
Burnley 0-2 West Ham
Hamrarnir hafa farið vel af stað í ensku deildinni í vetur, og sitja í sjöunda sæti deildarinnar. Hinn síungi Kevin Nolan fer fyrir skútunni sem fyrr.
Samkvæmt einföldum tölfræðireikningi er mjög ólíklegt að Burnley skori mark. Hamrarnir eru hins vegar flottir, taka þennan leik auðveldlega.
Crystal Palace 1-4 Chelsea
Diego Costa hefur verið andsetinn fyrir framan mark andstæðinga í vetur, og hefur skorað 9 mörk í sjö leikjum.
Áfram heldur stærsta lygi fótboltans um að Diego Costa sé eitthvað tæpur. Hann er gulur í Fantasy en spilar pottþétt á laugardaginn og skorar tvö. Chelsea er á óþolandi rönni en fer að tapa þegar Móri byrjar að mæta á æfingar með Napoleónshatt og varalit.
Everton 2-3 Aston Villa
Roberto Martinez, þjálfari Everton, á ærið verk fyrir höndum að þétta vörn liðsins, en liðið hefur fengið á sig sextán mörk í fyrstu sjö leikjunum, eða mest allra liða í deildinni.
Þarna mætast tvö lið sem ég skil ekkert í. Skil ekki af hverju Everton eru svona glataðir og skil alls ekki af hverju Aston Villa eru svona fínir. Þetta verður leikur helgarinnar. Mörk, tæklingar, spjöld og stuð.
Newcastle 0-1 Leicester
Verður leikurinn í dag gegn Leicester, síðasti leikur Alan Pardew við stjórnvölinn hjá Newcastle?
Það verða fleiri spjöld í þessum leik en í spilastokki í sumarbústað (43). Ég fór á Borgríki 2 í vikunni og þessi leikur verður svipaður: Nóg af ofbeldi en minna af kynlífi.
Southampton 1-0 Sunderland
Eftir að hafa misst marga lykilleikmenn í sumar, hefur frammistaða Southampton í ensku úrvalsdeildinni komið mörgum á óvart.
Þetta Southhampton lið er áttunda undur veraldar. Sést úr geimnum og enginn veit hvernig svona frambærilegt lið varð til eftir að stóru liðin sópuðu upp leikmönnum eins og þeir væru sófaborð í Söstrene Grene.
QPR 1-2 Liverpool
Frammistaða Liverpool í upphafi leiktímabils hefur valdið áhangendum liðsins vonbrigðum. Einn af lykilmönnum liðsins er Raheem Sterling.
Þessi spá byggist á tilfinningarökum. Mínir menn eru búnir að vera vonlausir í haust og þessi leikur skelfir mig. Í fyrra vissi maður að ef mótherjarnir skoruðu tvö myndi Liverpool bara skora fjögur. Ég vil þennan tíma aftur.
Stoke 0-3 Swansea
Gylfi Sigurðsson hefur sjaldan eða aldrei leikið betur. Hann hefur verið óstöðvandi með Swansea og íslenska landsliðinu, og fagnar hér marki gegn Manchester United.
Hollendingaslátrarinn Gylfi Sigurðsson mætir lemstraður úr landsleikjastuðinu en skorar og gefur stoðsendingu. Venjulegur dagur á skrifstofunni hjá Gylfa.
West Brom 2-2 Man Utd
Hinn fljúgandi Angel Di Maria hefur verið óstöðvandi á tímabilinu. Það verður forvitnilegt að fylgjast með hvernig honum reiðir af gegn baráttuglöðu liði West Brom.
Manchester United tapaði fyrir Leicester í mest brútal fótboltaleik sem ég hef séð. Þá held ég að litlu liðin í deildinni hafi verið eins og lúðar í grunnskóla sem sáu loksins veikleika bekkjarhrottans. West Brom mæta því sturlaðir til leiks. Bekkjarhrottinn er hins vegar búinn að vera duglegur í ræktinni og tekur anabólískur á móti lúðunum. Þetta endar illa fyrir alla.