Hlutfall starfandi af mannfjölda var 77,8 prósent og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 5,5 prósent í apríl. Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru að jafnaði 191.600 á aldrinum sextán til 74 ára á vinnumarkaði í apríl 2015, sem jafngildir 82,3 prósent atvinnuþátttöku. Af þeim voru 181.000 starfandi og 10.600 án vinnu og í atvinnuleit.
„Samanburður mælinga fyrir apríl 2014 og 2015 sýnir að þátttaka fólks á vinnumarkaði jókst um 3,2 prósentustig og fjölgun vinnuaflsins var um 10.900 manns. Starfandi fólki fjölgaði um 11.200 manns og hlutfallið jókst um 3,4 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði lítillega eða um 300 manns en hlutfall atvinnuleysis er lægra sem nemur 0,5 prósentustigum. Fólki sem stendur utan vinnumarkaðar fækkaði um 6.400 manns. Fyrri mælingar á atvinnuleysi sýna að í apríl og maí eykst atvinnuleysi alltaf miðað við mánuðina á undan. Munar þar mestu um að ungt fólk kemur þá í auknum mæli inn á vinnumarkaðinn í leit að sumarstörfum. Í apríl 2015 var atvinnuleysi á meðal sextán til 24 ára 14,6 prósent á meðan það var 3,7 prósent hjá 25 ára og eldri. Borið saman við apríl 2014 þá var atvinnuleysi hjá sextán til 24 ára 15,6 prósent og 4,2 prósent hjá 25 ára og eldri,“ segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.