Aukið fjör á byggingarmarkaði

Ýmsar vísbendingar eru uppi um að húsnæðisuppbygging hafi aukist á síðustu mánuðum eftir að hafa verið í lægra lagi árin 2019 og 2020. Hins vegar virðist virknin ekki enn hafa náð sömu hæðum og árið 2018.

Húsnæðisframkvæmdir virðast hafa verið meiri það sem af er ári miðað við í fyrra, en hafa þó sennilega ekki náð fyrri hæðum.
Húsnæðisframkvæmdir virðast hafa verið meiri það sem af er ári miðað við í fyrra, en hafa þó sennilega ekki náð fyrri hæðum.
Auglýsing

Inn­flutn­ingur bygg­ing­ar­hrá­efnis var meiri á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en hann hefur verið á öðrum árs­helm­ingum síð­ustu tveggja ára. Sömu­leiðis hefur skoð­unum á bygg­ing­ar­krönum fjölg­að, sem bendir til þess að virknin á bygg­ing­ar­mark­aðnum hafi auk­ist í ár.

Sam­kvæmt nýbirtum tölum Hag­stofu um vöru­við­skipti við útlönd hafa tæp 50 þús­und tonn af ýmsum bygg­ing­ar­hrá­efnum verið flutt inn til lands­ins á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Þetta er 15 pró­senta aukn­ing frá því á sama tíma­bili í fyrra, þar sem inn­flutn­ingur þess­ara hrá­efna nam 43 þús­und tonn­um.

Auglýsing

Hrá­efnin sem um ræðir eru timb­ur, kross­við­ur, spónar, bygg­ing­arplöt­ur, rúðu­gler, steypu­styrkt­ar­járn og þak­járn. Líkt og sést á mynd hér að neðan náði inn­flutn­ingur þess­ara hrá­efna hámarki á fyrri hluta árs­ins 2018 en minnk­aði svo stöðugt að síð­ari hluta árs­ins 2019. Síðan þá hefur inn­flutn­ing­ur­inn auk­ist með hverjum árs­helm­ingn­um, þótt hann hafi ekki enn náð fyrri hæð­um.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Hagstofa

Inn­flutn­ing­ur­inn er í ágætu í sam­ræmi við svo­kall­aða krana­vísi­tölu vinnu­eft­ir­lits­ins, sem sýnir fjölda skoð­ana á bygg­ing­ar­krönum hverju sinni. Sam­kvæmt vinnu­eft­ir­lit­inu gefur vísi­talan góða mynd á þann fjölda bygg­ing­ar­krana sem er í notkun hverju sinni, en þeir voru fleiri á fyrstu sex mán­uðum árs­ins en þeir voru í fyrra. Þó eru þeir ekki jafn­margir og þeir voru á árinu 2018.

Sam­dráttur í fram­boði en áhugi á bygg­ingu hag­kvæmra íbúða

Hús­næð­is- og mann­virkja­stofnun greindi frá því í síð­ustu mán­að­ar­skýrslu sinni að fram­boð íbúða til sölu hafi dreg­ist hratt saman á síð­ustu tólf mán­uðum alls staðar á land­inu nema á Norð­ur­landi vestra. Sam­drátt­ur­inn hefur verið mestur á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, Norð­ur­landi eystra og á Suð­ur­nesj­um.

Stofnun greindi hins vegar frá því að mik­ill áhugi væri á meðal bygg­ing­ar­að­ila um að byggja íbúðir sem sam­ræmd­ust reglum um hlut­deild­ar­lán. Því sagði hún að ljóst væri að tals­vert af hag­kvæmum íbúðum myndi líta dags­ins ljós á næstu árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent