Bakslag í ferðamannafjölda eftir Ómíkron

Dregið hefur verulega úr upptaktinum í ferðamannafjölda til Íslands á síðustu þremur mánuðum, eftir uppgötvun Ómíkron-afbrigðisins af kórónuveirunni. Erlendir farþegar í síðasta mánuði voru helmingi færri en í febrúar 2019.

vi-seljalandsfoss_14520557736_o.jpg
Auglýsing

Alls fóru um 76 þús­und far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl í febr­ú­ar, sam­kvæmt nýbirtum tölum frá Ferða­mála­stofu, en það er um helm­ingi færri far­þegar en fóru um völl­inn á sama tíma árið 2019. Ekki hefur enn tek­ist að vinna úr því bakslagi í ferða­manna­fjöld­anum sem varð eftir að kór­ónu­veirusmitum tók að fjölga vegna Ómíkron-af­brigð­is­ins, en sér­stak­lega hefur fækkað í hópi Banda­ríkja­manna á síð­ustu þremur mán­uð­um.

Ferða­mála­stofa greinir frá því að ferða­manna­fjöld­inn sé gjör­breyttur frá því á síð­asta ári, þegar brott­farir voru um þrjú þús­und tals­ins. Í ár voru þær álíka margar og árið 2015, en um og yfir helm­ingi færri en í febr­úar árin 2019 og 2020. Nærri tvær af hverjum fimm brott­förum voru til­komnar vegna Breta.

Auglýsing

Myndin hér að neðan sýnir far­þega­fjöld­ann í hverjum mán­uði frá upp­hafi far­ald­urs­ins, ef miðað er við sama mánuð árið 2019. Sam­kvæmt henni dró veru­lega úr mun­inum í fyrra, en í októ­ber síð­ast­liðnum var fjöldi ferða­manna orð­inn 63 pró­sent af þeim fjölda sem fór um Kefla­vík­ur­flug­völl í nóv­em­ber 2019.

Mynd: Kjarninn. Heimild: Ferðamálastofa.

Í kjöl­far upp­götv­unar á Ómíkron- afbrigð­inu hefur þó orðið við­snún­ingur á þess­ari þró­un. Á síð­ustu þremur mán­uðum hafa erlendir far­þegar um Kefla­vík­ur­flug­völl verið um helm­ingi færri en á sama tíma fyrir þremur árum síð­an.

Mest hefur fækkað í hópi banda­rískra ferða­manna, en heild­ar­fjöldi þeirra í síð­asta mán­uði nam aðeins 40 pró­sentum af sam­svar­andi fjölda í febr­úar árið 2019. Fyrir Ómíkron-­bylgj­una var fjöldi þeirra þó næstum því kom­inn aftur í eðli­legt horf, en í októ­ber var hann 90 pró­sent af sam­svar­andi fjölda þeirra fyrir þremur árum síð­an.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent