Bandarískum fyrirtækjum skylt að upplýsa um launamun milli forstjóra og starfsmanna

wall-street-sign.jpeg
Auglýsing

Banda­ríska verð­bréfa­eft­ir­lit­ið, SEC, sam­þykkti í dag nýja reglu sem skyldar fyr­ir­tæki til þess að birta opin­ber­lega upp­lýs­ingar um launa­mun milli for­stjóra fyr­ir­tækis og dæmi­gerðs starfs­manns þess. Stjórn verð­bréfa­eft­ir­lits­ins sam­þykkti regl­una með þremur atkvæðum gegn tveimur en Mary Jo White, stjórn­ar­for­maður eft­ir­lits­ins, hefur verið undir miklum þrýst­ingi frá stétt­ar­fé­lögum og hópi Demókrata um að inn­leiða regl­una. White og tveir Demókratar í stjórn­inni sam­þykktu inn­leið­ingu regl­unn­ar.

Tveir full­trúar Repúblik­ana í stjórn­inni lögð­ust gegn breyt­ing­un­um. Þeir telja regl­una ­þjóna þeim til­gangi einum að gera lítið úr for­stjórum fyr­ir­tækja og telja upp­lýs­ingar ekki gagnast fjár­festum að nokkru leyti. Demókrat­arnir telja aftur á móti að upp­lýs­ing­arnar gagn­ist hlut­höfum við að ákvarða laun for­stjóra. Frétta­stofa Bloomberg greinir frá í dag. Í umfjöllun Bloomberg eru þessar nýju reglur sagðar færa nýtt vopn í hendur þeirra sem berj­ast gegn auk­inni mis­skipt­ingu tekna.

Reglu­breyt­ing­arnar taka gildi í árs­byrjun 2017. Frá þeim tíma munu banda­rísk fyr­ir­tæki þurfa að upp­lýsa um með­al­laun starfs­manna að for­stjór­anum und­an­skild­um, laun for­stjóra auk hlut­falls launa hans af með­al­launum starfs­fólks.

Auglýsing

Fram kemur í umfjöllun Bloomberg að með­al­laun for­stjóra 350 stærstu fyr­ir­tækja Banda­ríkj­anna juk­ust um 997 pró­sent frá 1978 til 2014. Á sama tíma­bili juk­ust laun almennra starfs­manna um 10,9 pró­sent. Árið 1978 voru laun æðstu stjórn­enda fyri­tækja um 30 sinnum hærri en dæmi­gerðs starfs­manns, en voru í fyrra um 300 sinnum hærri.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None