Bankasýsla Ríkisins stendur við ásakanir um afskipti ráðuneytisstjóra

j.n.gunnar.j.nsson_.jpg
Auglýsing

Banka­sýsla rík­is­ins segir að þau afskipti sem Guð­mundur Árna­son, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, hafi reynt að hafa af skipan stjórn­ar­for­manns spari­sjóðs sem ríkið á hlut í í fyrra­sumar falli ekki undir afskipti sem lög heim­ila. Stofn­unin stendur við fyrri ásak­anir um óeðli­legt afskipti ráðu­neyt­is­ins. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu á vef stofn­un­ar­innar sem var birt í dag.

Í umsögn um frum­varp um lög um með­ferð eign­ar­hluta rík­is­ins í fjár­mála­fyr­ir­tækjum, sem skilað var inn á mið­viku­dag, seg­ir Jón Gunnar Jóns­son,  for­stjóri Banka­sýsl­unn­ar, að Guð­mundur Árna­son, ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu, hafi reynt að hlut­ast til um skipan stjórn­ar­for­manns spari­sjóðs ­sem ríkið á eign­ar­hlut í með sím­tölum við sig í júní og júlí 2014. Hann hafi einnig reynt að fá stjórn­ar­fundi í sama fyr­ir­tæki frestað. Jón Gunnar seg­ist hafa mót­mælt þessum afskiptum sem hann taldi ekki í sam­ræmi við lög og að hann hafi auk þess upp­lýst stjórn stofn­un­ar­innar um þau. Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans í gær sagði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið að því fari fjarri að það hafi beint til­mælum til Banka­sýslu rík­is­ins sem hafi falið í sér til­raun til að reyna að hlut­ast til um skipan stjórn­ar­for­manns fjár­mála­fyr­ir­tæk­is. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefði óskað eftir því við ráðu­neyt­is­stjór­ann að óánægju Bol­vík­inga með sam­ein­ingu spari­sjóðs bæj­ar­ins við annan yrði komið á fram­færi með þessum hætti.

Í yfir­lýs­ingu Banka­sýslu rík­is­ins segir að hún standi við það sem fram kom í umsögn stofn­un­ar­innar um afskipti fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins.

Auglýsing

Yfir­lýs­ing­una í heild sinni má lesa hér:



"Í til­efni af frétt sem birt­ist á mbl.is dags. 28. maí sl. þar sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hafnar ásök­unum um afskipti ráðu­neyt­is­stjóra fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is, áréttar Banka­sýsla rík­is­ins að stofn­unin stendur við það sem fram kemur í umsögn stofn­un­ar­innar um afskipti ráðu­neyt­is­stjóra fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is.



Lög nr. 88/2009 um Banka­sýslu rík­is­ins gera ráð fyrir því að stofn­unin starfi á sjálf­stæðan hátt og án afskipta fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is, að því und­an­skildu að ráð­herra er í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum heim­ilt að beina til­mælum til stjórnar Banka­sýslu rík­is­ins sam­kvæmt 3. mgr. 2. gr. lag­anna, en þá skal efna­hags- og við­skipta­nefnd gerð grein fyrir til­mæl­un­um. Ljóst er að þau afskipti ráðu­neyt­is­stjór­ans sem Banka­sýsla rík­is­ins víkur að í umsögn sinni falla ekki undir þau heim­ilu afskipti sem lög gera ráð fyr­ir, sbr. áður­nefnda 3. mgr. 2. gr. lag­anna.  Þaðan af síður hefði Banka­sýslu rík­is­ins verið heim­ilt að verða við beiðnum ráðu­neyt­is­stjór­ans að því leyti sem þær fælu í sér óeðli­leg afskipti af starf­semi umrædds fjár­mála­fyr­ir­tækis í and­stöðu við verka­skipt­ingu á vett­vangi stjórnar þess einka­rétt­ar­lega fyr­ir­tæk­is.



Halda verður því til haga að umfjöllun um þetta efni í umsögn Banka­sýslu rík­is­ins er sett fram í til­efni af fram­komnu frum­varpi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis þar sem lagt er upp með að komið verði á fót umsýslu­ein­ingu félaga í eigu rík­is­ins innan ráðu­neyt­is­ins. Við­ur­kennt er í frum­varp­inu að slíku fyr­ir­komu­lagi geti fylgt hags­muna­á­rekstrar milli eig­anda­hlut­verks og stefnu­mót­un­ar­hlut­verks ráðu­neyt­is­ins. Til að bregð­ast við þeim hags­muna­á­rekstrum segir í athuga­semdum með laga­frum­varp­inu um umsýslu­ein­ing­una að hlut­verk „slíkrar ein­ingar yrði skýr­lega aðgreint frá öðrum hlut­verkum ráðu­neyt­is­ins sem bein­ast að fjár­mála­fyr­ir­tækjum almennt og með því móti dregið úr mögu­legum hags­muna­á­rekstrum vegna ólíkra hlut­verka“.



Það er í þessu sam­hengi sem Banka­sýsla rík­is­ins vekur máls á afskiptum ráðu­neyt­is­stjór­ans, enda gefa áður­nefnd afskipti hans til kynna að hætta leiki á því að hann kunni að hlut­ast til um starf­semi fjár­mála­fyr­ir­tækja með fyr­ir­mælum til und­ir­manna sinna innan ráðu­neyt­is­ins verði frum­varpið að lög­um. Slíkt gengur gegn þeim grunn­rök­semdum sem búa að baki núver­andi fyr­ir­komu­lagi eigna­um­sýslu, sem eru að ríkið skuli „vera trú­verð­ugur eig­andi fjár­mála­fyr­ir­tækja og hlut­verk þess hafið yfir vafa um póli­tísk afskipti af dag­legum ákvörð­unum fyr­ir­tækj­anna“, sbr. athuga­semdir með frum­varpi því er varð að lögum nr. 88/2009."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None