Bankasýslan segist fagna því að FME skoði tiltekna þætti útboðsins

Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins hefur ritað Fjármáleftirlitinu bréf, þar sem hann segir Bankasýsluna fagna því að FME skoði nú tiltekna þætti nýlegs útboðs á hluta af eign ríkisins í Íslandsbanka.

Lárus Blöndal stjórnarformaður og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Lárus Blöndal stjórnarformaður og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Bankasýslu ríkisins.
Auglýsing

Banka­sýsla rík­is­ins seg­ist fagna því að Fjár­mála­eft­ir­lit Seðla­bank­ans sé að skoða til­tekna þætti í tengslum við útboð og starfs­hætti sölu­ráð­gjafa í sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka, enda hafi Banka­sýslan sjálf engar heim­ildir til eft­ir­grennslan eða athug­unar á þeim þætti sölu­ferl­is­ins.

Þetta kemur fram í bréfi sem Jón Gunnar Jóns­son for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins hefur sent á Fjár­mála­eft­ir­lit­ið, en það er birt á vef stofn­un­ar­innar í dag. Stundin sagði frá því í gær að skoðun á til­teknum þáttum tengdum söl­unni hefði þegar haf­ist hjá FME.

„Mik­il­vægi þess að skapa traust og til­trú á sölu­með­ferð á eign­ar­hlutum rík­is­ins í Íslands­banka verður seint ofmet­ið. Banka­sýsla rík­is­ins býður fram alla sína aðstoð og upp­lýs­ingar sem varpað geta nán­ari ljósi á útboð­ið,“ segir í bréfi Jóns Gunn­ars í dag.

Auglýsing

Þar segir einnig að „mikil umfjöll­un“ hafi verið um útboðið í fjöl­miðlum á síð­ustu vikum og komið hafi fram „fréttir varð­andi hvort kaup­endur hafi upp­fyllt laga­skil­yrði um að telj­ast hæfur fjár­festir í útboð­inu sem og mögu­legum hags­muna­á­rekstrum hjá sölu­ráð­gjöf­um, t.d. vegna kaupa starfs­manna eða tengdra aðila á eign­ar­hlut­u­m“.

Arð­greiðsla útskýri verð­lækkun bréfa fyrir útboð

Einnig er í bréf­inu vakin athygli á athuga­semdum Björns Levís Gunn­ars­sonar þing­manns Pírata, sem hefur velt því upp hvort mögu­leg mark­aðs­mis­notkun hafi átt sér stað í aðdrag­anda útboð, með vísan til þess að verð á hlutum í Íslands­banka hafi lækkað nokkuð í aðdrag­and­an­um.

Banka­sýslan vekur þó, vegna athuga­semda Björns Levís, sér­staka athygli á því að á hlut­hafa­fundi Íslands­banka sem fram fór 17. mars hafi verið ákveðin arð­greiðsla sem nam 5,95 kr. á hlut. „Arð­leys­is­dagur var þann 18. mars sem skýrir að lang­mestu þá verð­lækkun sem varð fyrir útboðið þann 22. mar­s,“ segir í bréfi for­stjóra Banka­sýsl­unn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent