Tveir starfsmenn og tveir embættismenn höfnuðu flutningi milli ráðuneyta

Fjórir starfs- og embættismenn þáðu ekki boð um flutning milli ráðuneyta þegar breytt skipan ráðuneyta tók gildi í janúar. Biðlaun annars embættismannsins kosta ríkissjóð 22 milljónir króna.

Fjórir starfsmenn og embættismenn hafa hafnað flutningi milli ráðuneyta í kjölfar breyttrar skipunar stjórnarráðsins sem lögð var til í stjórnarsáttmála endurnýjaðs ríkisstjórnarsamstarfs í lok síðasta árs.
Fjórir starfsmenn og embættismenn hafa hafnað flutningi milli ráðuneyta í kjölfar breyttrar skipunar stjórnarráðsins sem lögð var til í stjórnarsáttmála endurnýjaðs ríkisstjórnarsamstarfs í lok síðasta árs.
Auglýsing

Tveir starfs­menn mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is­ins og tveir emb­ætt­is­menn höfn­uðu flutn­ingi milli ráðu­neyta í kjöl­far breyt­inga á skipan ráðu­neyta sem sam­þykkt var á Alþingi í lok jan­ú­ar.

Starfs­menn­irnir tveir sinna áfram störfum í mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­inu. Einn emb­ætt­is­maður lét af störfum og fær bið­launa­greiðsl­ur, alls 22 millj­ónir króna. Þá var einum emb­ætt­is­manni veitt lausn frá emb­ætti með lög­mæltum eft­ir­laun­um. Kostn­aður rík­is­sjóðs vegna eft­ir­launa­greiðsln­anna liggja ekki fyrir að því er fram kemur í fyr­ir­spurn Kjarn­ans til ráðu­neyt­is­ins.

Auglýsing
Breytt skipan ráðu­neyta, með til­færslu mála­flokka milli ráðu­neyta og fjölgun þeirra úr tíu á tólf, var á meðal þess sem Bjarni Bene­dikts­son, Katrín Jak­obs­dóttir og Sig­urður Ingi Jóhanns­son kynntu við und­ir­ritun nýs stjórn­ar­sátt­mála 28. nóv­em­ber í fyrra. Þings­á­lykt­un­ar­til­laga þess efnis var sam­þykkt í lok 27. jan­ú­ar.

Líkt og Kjarn­inn hefur greint frá er gert ráð fyrir að kostn­aður þess­ara breyt­inga verði 505 millj­ónir á næsta ári. Ekki er ljóst hvort kostn­aður vegna höfn­unar starfs- og emb­ætt­is­manna á flutn­ingi milli ráðu­neyta sé tek­inn með en slíkt mat hefur að minnsta kosti ekki verið tekið saman sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans.

Sam­kvæmt frum­varpi til fjár­auka­laga sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra lagði fram í síð­asta mán­uði verða fjár­heim­ildir að upp­hæð 120 millj­arða króna færðar til vegna breyttrar skipan Stjórn­ar­ráðs Íslands.

Aðeins starfs- og emb­ætt­is­menn í mennta- og barna­mála­ráðu­neyti sem höfn­uðu flutn­ingi

Með breyttri skipan ráðu­neyta var ráðu­neytum fjölgað úr tíu í tólf, mála­­­flokkar færðir til og heiti ráðu­­­neyta breyt­­t­ust. Í stað atvinn­u­­­vega- og nýsköp­un­­­ar­ráðu­­­neyt­is, félags­­­­­mála­ráðu­­­neyt­is, mennta- og menn­ing­­­ar­­­mála­ráðu­­­neyt­is, sam­­göngu- og sveit­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­ráðu­­­neytis og umhverf­is- og auð­linda­ráðu­­­neytis komu félags- og vinn­u­­­mark­aðs­ráðu­­­neyti, háskóla-, iðn­­­að­­­ar- og nýsköp­un­­­ar­ráðu­­­neyti, inn­­­við­a­ráðu­­­neyti, mat­væla­ráðu­­­neyti, menn­ing­­­ar- og við­­­skipta­ráðu­­­neyti, mennta- og barna­­­mála­ráðu­­­neyti og umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­­­neyti.

Kjarn­inn sendi fyr­ir­spurn á öll tólf ráðu­neytin og óskaði eftir upp­lýs­ingum um hvort starfs­menn eða emb­ætt­is­menn hefðu hafnað flutn­ingi á milli ráðu­neyta.

Engir starfs­menn eða emb­ætt­is­menn í umhverf­is- orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­inu voru fluttir á milli ráðu­neyta. Tveir starfs­menn ann­ars ráðu­neytis þáðu aftur á móti starf hjá ráðu­neyt­inu í tengslum við ný verk­efni sem færð voru til ráðu­neyt­is­ins vegna breyt­ing­anna.

Eng­inn úr starfs­liði ráðu­neyt­is­ins hafn­aði flutn­ingi í tengslum við breytta skipan ráðu­neyta í Stjórn­ar­ráði Íslands. Fimm ein­stak­ling­ar, sem sinntu mál­efnum fjar­skipta og net­ör­ygg­is­mála, flutt­ust frá ráðu­neyt­inu, þar af einn emb­ætt­is­mað­ur.

Í svari frá menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyti til Kjarn­ans segir að þar sem ráðu­neytið var stofnað við breyt­ing­una á Stjórn­ar­ráð­inu voru í raun engir starfs­menn sem höfn­uðu flutn­ingi frá ráðu­neyt­inu, heldur hátt­aði málum svo að starfs­menn komu til menn­ing­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins frá atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu (nú mat­væla­ráðu­neyti) og mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyti (nú mennta og barna­mála­ráðu­neyti) og ráðu­neyt­is­stjóri, Skúli Egg­ert Þórð­ar­son, kom frá Rík­is­end­ur­skoð­un.

Einn starfs­maður fór frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og setti sig ekki upp á móti þeim flutn­ingi.

Engir starfs­menn eða emb­ætt­is­menn mat­væla­ráðu­neyt­is­ins höfn­uðu flutn­ingi þegar mat­væla­ráðu­neytið var stofn­að. Það sama gildir um for­sæt­is­ráðu­neyt­ið, fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið, utan­rík­is­ráðu­neyt­ið, háskóla-, iðn­að­ar- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyti, heil­brigð­is­ráðu­neytið og félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent