Fjölgun ráðuneyta og tilfærsla málaflokka kostar hálfan milljarð króna

Fjölgun ráðuneyta og ráðherra, í samræmi við stjórnarsáttmála, kostar 505 milljónir króna á næsta ári. Ráðherrar hafa aldrei verið fleiri og aðstoðarmenn þeirra eru nú 27. Launakostnaður þessara 39 einstaklinga er áætlaður 771 milljón á ári.

Nýr stjórnarsáttmáli og breytt skipun stjórnarráðsins voru kynnt 28. nóvember síðastliðinn.
Nýr stjórnarsáttmáli og breytt skipun stjórnarráðsins voru kynnt 28. nóvember síðastliðinn.
Auglýsing

Gert er ráð fyrir að breytt skipun stjórn­ar­ráðs­ins, sem felur í sér til­færslu mála­flokka milli ráðu­neyta og fjölgun þeirra úr tíu í tólf, kosti 505 millj­ónir króna á næsta ári. 

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar um fjár­laga­frum­varp­ið, sem sam­anstendur af nefnd­ar­mönnum stjórn­ar­flokk­anna þriggja, er gerð til­laga um að sam­svar­andi upp­hæð verði ráð­stafað úr rík­is­sjóði á árinu 2022 vegna þessa kostn­aðar til við­bótar við það sem rekstur stjórn­ar­ráðs­ins kost­aði áður. 

Þegar end­­ur­nýjað sam­­starf Vinstri grænna, Fram­­sókn­­ar­­flokks og Sjálf­­stæð­is­­flokks var kynnt greindu for­­menn flokk­anna frá því að þeir ætl­­uðu að fjölga ráð­herrum í tólf. Þeir hafa aldrei verið fleiri hér­­­lend­­is. 

Auk þess voru mála­­flokkar færðir til og kynnt að heiti ráðu­­neyta myndu breyt­­ast. Í stað atvinn­u­­vega- og nýsköp­un­­ar­ráðu­­neyt­is, félags­­­mála­ráðu­­neyt­is, mennta- og menn­ing­­ar­­mála­ráðu­­neyt­is, sam­göngu- og sveit­­ar­­stjórn­­­ar­ráðu­­neytis og umhverf­is- og auð­linda­ráðu­­neytis koma félags- og vinn­u­­mark­aðs­ráðu­­neyti, háskóla-, iðn­­að­­ar- og nýsköp­un­­ar­ráðu­­neyti, inn­­við­a­ráðu­­neyti, mat­væla­ráðu­­neyti, menn­ing­­ar- og við­­skipta­ráðu­­neyti, mennta- og barna­­mála­ráðu­­neyti og umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­­neyti.

Ráðu­neyt­is­stjóri, rit­ari, bíl­stjóri

Sam­kvæmt for­sendum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytis nemur árlegur launa­kostn­aður ásamt launa­tengdum gjöldum vegna stofn­unar nýs ráðu­neytis um 130 millj­ónum króna vegna ráðu­neyt­is­stjóra, rit­ara, bíl­stjóra og þriggja almennra starfs­manna. Annar rekstr­ar­kostn­aður er áætl­aður um 40 millj­ónir króna á ári fyrir hvort ráðu­neyt­i. 

Auglýsing
Því til við­bótar þarf að gera ráð fyrir tíma­bundnum við­bót­ar­kostn­aði við húsa­leigu fyrir eitt ráðu­neyti, sem metin er á 40 mill­ljónir króna á ári. Jafn­framt þarf að gera ráð fyrir ein­skipt­is­fjár­fest­ingu í bún­aði og tækj­um, fyrir hvort ráðu­neyti, og áætl­aður kostn­aður vegna þessa er 15 millj­ónir króna.

Í nefnd­ar­á­lit­inu segir að .ar sem ekki liggi fyrir á þessu stigi end­an­legt innra skipu­lag nýrra ráðu­neyta, til­færsla núver­andi starfs­manna og breyttar starfs­á­hersl­ur, meðal ann­ars  í tengslum við stefnu­mál rík­is­stjórn­ar­innar sam­kvæmt stjórn­ar­sátt­mála, sé óvissa um í hvaða mæli ráða þarf til starfa aukið starfs­lið. „Að sam­an­lögðu má telja að heild­ar­kostn­aður við stofnun tveggja nýrra ráðu­neyta gæti numið um 505 m.kr. fyrsta árið, en þar af fær­ast 450 m.kr. á þennan mála­flokk.“

Laun ráð­herra og aðstoð­ar­manna verða 771 milljón

Það sem upp á vantar fellur til vegna rekst­urs rík­­­is­­­stjórnar Íslands. Undir þann lið falla launa­greiðslur ráð­herra og aðstoð­­­ar­­­manna þeirra.

Hann var áætl­­­aður 714,9 millj­­ónir króna á næsta ári sam­­kvæmt fyr­ir­liggj­andi fjár­­laga­frum­varpi, sem er um fimm pró­­sent meiri kostn­aður en áætlun vegna árs­ins 2021 gerir ráð fyr­ir, en þá á rekst­­ur­inn að kosta 681,3 millj­­ónir króna.

Í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar er gerð til­laga um að útgjöld vegna þessa liðar verði hækkuð um 56,3 millj­ónir króna. Ástæðan er sögð fjölgun ráð­herra og aðstoð­ar­manna í sam­ræmi við skipan nýrrar rík­is­stjórnar í lok nóv­em­ber, þegar ráð­herrum var fjölgað um einn í tólf og aðstoð­ar­mönnum um tvo.

Alls má rík­­­is­­­stjórnin því ráða 27 aðstoð­­­ar­­­menn sem stend­ur en fyrir utan þá tvo sem hver ráð­herra hefur getur rík­is­stjórnin sjálf ráðið þrjá, þar á meðal einn upp­lýs­inga­full­trúa.

Því mun kostn­aður vegna launa­greiðslna til ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra verða 771,2 millj­ónir króna á næsta ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent