Sóttvarnalæknir vill endurvekja sóttkví við komuna til landsins

Sóttvarnalæknir leggur til að allir farþegar framvísi neikvæðu PCR-prófi áður en komið er til landsins. Íslenskir ríkisborgarar geti farið í sýnatöku á heilsugæslustöð innan 48 klukkustunda frá heimkomu og verði í sóttkví þar til neikvæð niðurstaða berst.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til að farþegar fari í PCR-próf við komuna til landsins og sæti sóttkví á meðan neikvæðrar niðurstöðu er beðið.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til að farþegar fari í PCR-próf við komuna til landsins og sæti sóttkví á meðan neikvæðrar niðurstöðu er beðið.
Auglýsing

Núgild­andi reglur á landa­mær­unum gilda til 15. jan­úar 2022 en í minn­is­blaði sem Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir skil­aði heil­brigð­is­ráð­herra í gær telur hann mik­il­vægt að skoða betur mögu­leik­ann á hert­ari aðgerðum á landa­mærum, bæði til styttri og lengri tíma.

Á­stæðan er hröð útbreiðsla ómíkron-af­brigðis kór­ónu­veirunnar sem sótt­varna­læknir telur að verði alls­ráð­andi hér á landi áður en langt um líð­ur. Stærsta breyt­ingin sem hann leggur til á landa­mær­unum snýr að sótt­kví far­þega sem koma til lands­ins. Í núgild­andi reglum eru íslenskir rík­is­borg­arar und­an­þegnir þeirri skyldu að fram­vísa nei­kvæðu PCR- eða hrað­grein­ing­ar­prófi en þurfa þess í stað að und­ir­gang­ast slík próf innan tveggja sól­ar­hringa eftir komu til lands­ins.

Auglýsing

Sótt­varna­læknir leggur til breyt­ing­una þar sem flestir sem nú eru að grein­ast á landa­mærum til­heyra þessum hópi far­þega og jafn­vel eru margir með nei­kvætt próf við komu og grein­ast ekki fyrr en að nokkrum dögum liðnum og hafa þannig náð að smita aðra. PCR-­próf tekið um það bil sól­ar­hring eftir komu á að tryggja betur að þessir ein­stak­lingar grein­ist fyrr en ella að mati sótt­varna­lækn­is. Þá segir hann PCR-­próf mun áreið­an­legri en hrað­grein­inga­próf og því þurfi að skoða hvort ekki eigi að krefja alla um PCR próf fyrir brott­för en ekki gefa kost á hrað­grein­ing­ar­prófi.

Þá telur sótt­varna­læknir einnig að kanna þurfi mögu­leika á því að prófa alla far­þega fyrir kór­ónu­veirunni við kom­una til lands­ins eins og áður hefur verið gert. „Á þess­ari stundu er erfitt að sjá að það sé ger­legt vegna tak­mark­aðrar sýna­töku­getu á landa­mær­unum og tak­mark­aðrar grein­ing­ar­getu. Þetta þarf hins vegar að skoða bet­ur,“ segir í minn­is­blað­inu. Sótt­varna­læknir segir að skoða þurfi þá leið að sýni séu tekin af ferða­mönnum á landa­mærum en af öðrum á heilsu­gæslu­stöð. Einnig þurfi að kanna hvernig auka megi grein­ing­ar­getu.

Landamæra­hópur for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins fær það verk­efni að skoða þær til­lögur á landa­mær­unum sem sótt­varna­læknir leggur til.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent