Engin haldbær rök fyrir að halda leikskólum opnum

Stjórnir Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla lýsa vonbrigðum sínum með það að ekki var hlustað á raddir félaganna um að loka leikskólum milli jóla og nýárs til að hemja útbreiðslu Covid-19.

23-april-2014_13983717045_o.jpg
Auglýsing

Hertar sam­komu­tak­mark­anir sem taka gildi á mið­nætti annað kvöld taka ekki til leik­skóla. Sótt­varna­læknir lagði ekki til lokun leik­skóla í minn­is­blaði sínu til heil­brigð­is­ráð­herra en ákvörðun um upp­haf skóla­halds í grunn-, fram­halds- og háskólum á nýju ári verður í höndum skóla­stjórn­enda, en sótt­varna­læknir lagði til að skólar á þessu náms­stigi yrðu lok­aðir 10. jan­ú­ar.

Í ályktun sem stjórnir Félags leik­skóla­kenn­ara og Félags stjórn­enda leik­skóla sendu frá sér eftir að hertar sam­komu­tak­mark­anir voru til­kynntar benda þau á að félögin komu áhyggjum sínum skýrt til skila með góðum fyr­ir­vara en segja að mál­efna­leg rök hafi verið virt að vettugi. „Engin hald­bær sótt­varn­ar­rök eru fyrir því að loka ekki leik­skól­um. Öll börn á leik­skóla­stig­inu eru óbólu­sett og ef horft er til hlut­falls fjölda barna í ein­angrun er sára­lít­ill munur á milli leik- og grunn­skóla­stigs­ins,“ segir í ályktun félag­anna.

Auglýsing

Höfum vítin til að var­ast

20 manna sam­komu­bann var síð­ast í gildi í apr­íl. Þá lok­uðu grunn- og fram­halds­skólar dag­ana fyrir dymbil­viku en leik­skólum var haldið opnum alla þá daga fram að lög­bundnum frí­dög­um. Félögin minna á þessa ákvörðun lagð­ist mjög illa í kenn­ara og stjórn­endur sem upp­lifðu mikla van­virð­ingu gagn­vart skóla­stig­inu. „Sú ákvörðun leiddi til að í kjöl­farið kom upp eitt stærsta hópsmit í íslensku sam­fé­lagi í leik­skól­anum Jörfa. Við höfum því vítin til að varast,“ segir í álykt­un­inni.

Félögin benda á að sam­gangur stór­fjöl­skyldna er eðli­legur fylgi­fiskur jóla­halds­ins og getur það leitt til þess að smitin muni dreifa sér í leik­skólum lands­ins milli jóla og nýárs. Félögin hvetja ein­dregið til þess að for­eldrar haldi börnum sínum heima milli jóla og nýárs. Eins hvetja félögin öll sveit­ar­fé­lög til að loka sínum leik­skólum á milli hátíða.

„Það er ástæða til að hafa veru­legar áhyggjur af afleið­ingum þess­arar ákvörð­un­ar. Bæði til skamms tíma og lengri. Sú sótt­varn­ar­lega áhætta sem verið er að taka er óum­deild,“ segir í ákykt­un­inni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent