„Beinlínis óábyrgt“ ef Seðlabankinn tekur ekki tillit til loftslagsbreytinga

Samkvæmt varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika ætti að vera óumdeilt að loftslagsmál sé viðfangsefni Seðlabankans vegna áhrifanna sem þau gætu haft á efnahagslífið og stöðugleika fjármálakerfisins.

Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.
Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.
Auglýsing

Seðla­bank­inn brygð­ist sinni lög­bund­inni skyldu ef hann léti sig ekki áhætt­una sem lofts­lags­mál fela í sér fyrir efna­hags­lífið og stöð­ug­leika fjár­mála­kerf­is­ins varða. Þetta segir Gunnar Jak­obs­son, vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika, í jóla­blaði Vís­bend­ingar.

Stofn­anir vinni saman til að greina vand­ann

Í grein sinni fer Gunnar yfir mögu­legar leiðir til að efla umræðu og skiln­ing á hætt­unni sem felst í lofts­lags­breyt­ing­um. Þeirra á meðal væri sam­starf Seðla­bank­ans við Orku­stofn­un, Haf­rann­sókn­ar­stofn­un, Veð­ur­stof­una og Nátt­úru­ham­fara­trygg­ingu Íslands til að búa til sviðs­myndir fyrir áhrif lofts­lags­breyt­inga á Ísland.

Sam­kvæmt honum mun Seðla­bank­inn hafa frum­kvæði að því að skoða slíkt sam­starf, en hann myndi svo nota þessar sviðs­myndir til að greina mögu­leg áhrif lofts­lags­breyt­inga á fjár­mála­kerfið og fjármálastöðugleika.

Auglýsing

Einnig nefnir Gunnar að seðla­bank­inn muni efna til mál­stofu með líf­eyr­is­sjóðum á næstu vik­um, þar sem farið verði yfir helstu þætti lofts­lags­á­hættu og lagður grunnur að frekara sam­tali. Þar að auki segir hann að stefnt verði að sams konar mál­stofu með við­skipta­bönkum í kjöl­far­ið.

Jólablað Vísbeningar

Blaðið birtist ef þú þrýstir á forsíðuna

Tutorials Point

Óum­deilt að lofts­lags­á­hætta sé við­fangs­efni bank­ans

Sam­kvæmt Gunn­ari getur áhættan sem er tengd lofts­lags­breyt­ingum ógnað því að Seðla­bank­inn nái mark­miðum sínum og þar með sett vel­ferð lands­manna í hættu og ætti því að vera óum­deilt að lofts­lags­á­hætta sé við­fangs­efni bank­ans.

Hann segir þær raddir sem segja að bank­inn ætti ekki að skipta sér að þessum málum vera byggðar á mis­skiln­ingi, þar sem lofts­lags­breyt­ingar fela í sér mikla áhættu fyrir stöð­ug­leika fjár­mála­kerf­is­ins. „Það væri bein­línis óábyrgt af Seðla­bank­anum að láta sig ekki lofts­lags­á­hætt­una varða,“ bætir hann við.

Hægt er að lesa grein Gunn­ars í heild sinni í jóla­blaði Vís­bend­ing­ar, sem hægt er að nálg­ast með því að smella hér.

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent