Bergþór Ólason bað ráðuneyti um að skilgreina fyrir sig hamfarahlýnun

Í svari umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn þingmanns Miðflokksins segir að fyrirspurninni, um skilgreiningu á hugtakinu hamfarahlýnun, hefði ef til vill átt að beina til Stofnunar Árna Magnússonar, fremur en til ráðherra.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Auglýsing

Berg­þór Óla­son þing­maður Mið­flokks­ins beindi fyrr á þessu ári skrif­legri fyr­ir­spurn til Guð­laugs Þórs Þórð­ar­sonar umhverf­is-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, um hvort til væri skil­grein­ing á hug­tak­inu ham­fara­hlýn­un. Ef skil­grein­ingin væri til, vildi þing­mað­ur­inn fá að sjá hana.

Fyr­ir­spurn­inni hefur nú verið svarað fyrir hönd ráð­herra, en í svar­inu segir að fyr­ir­spurnin „hefði mögu­lega átt að beina til Stofn­unar Árna Magn­ús­sonar í íslenskum fræð­um“ og segir í svar­inu frá ráð­herra að fyr­ir­spurn­inni sé svarað út frá útgefnu efni, en ef frek­ari grein­ing ósk­ist væri rétt fyrir þing­mann­inn að fá frek­ari umfjöllun um málið hjá Árna­stofn­un.

Þess má geta að orðið ham­fara­hlýnun var valið orð árs­ins árið 2019, af hlust­endum RÚV og Stofnun Árna Magn­ús­son­ar, en fyrstu heim­ildir um orðið eru frá árinu 2013 og mun Ari Trausti Guð­munds­son jarð­vís­inda­maður og fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna fyrstur hafa notað það í umfjöllun í íslenskum fjöl­miðl­um, sam­kvæmt umfjöllun mál­fars­ráðu­nautar Rík­is­út­varps­ins um orð­ið.

Auglýsing

Í svari ráðu­neyt­is­ins segir að orðið ham­fara­hlýnun hafi verið notað und­an­farin ár sem sam­heiti við lofts­lags­breyt­ingar eða hlýnun jarðar og þess getið að Lofts­lags­ráð hafi fjallað um notkun hug­taks­ins í skýrslu um aðlögun að lofts­lags­breyt­ing­um, Að búa sig undir breyttan heim, sem gefin var út í jan­úar 2020.

Í þeirri skýrslu segir orð­rétt:

„Í almannaum­ræðu hefur verið rætt um að nota eigi sterkara orð um lofts­lags­breyt­ingar til þess að vekja hug­hrif sem hæfa alvar­leika hlýn­unar og hafa ýmis orð borið á góma. Nýyrðið ham­fara­hlýnun hefur verið notað í bland við lofts­lags­breyt­ingar og hlýnun jarðar sem hafa skipað sér sess í mál­inu en þykja af mörgum of hlut­laus fyrir jafn alvar­legan vanda. Hug­takið lofts­lags­ham­farir hefur einnig verið notað í almennri umræðu um lofts­lags­vand­ann og sam­hliða því verið kallað eftir að þjóð­ríki lýsi yfir neyð­ar­á­standi vegna stöð­unnar í lofts­lags­mál­um. Í stað þess að nota hug­takið lofts­lags­ham­farir yfir lofts­lags­vand­ann mætti hugsa sér að nota það til þess að vísa til sér­stak­lega alvar­legra atburða vegna lofts­lags­breyt­inga sem skapa neyð­ar­á­stand, eins konar und­ir­flokk nátt­úru­ham­fara þar sem orsaka­tengsl eru milli atburða og hlýn­unar jarð­ar. Hins vegar skal hafa í huga að mun fleiri lofts­lagstengdir atburðir sem verða munu á Íslandi falla ekki undir skil­grein­ingu ham­fara og því er gagn­legt að eiga hug­tök sem vísa til minni atburða, minna tjóns af lofts­lags­völd­um, t.d. eru flest flóð sem valda tjóni á Íslandi svokölluð ama­flóð (e. nuisance flood­ing) en ekki ham­fara­flóð.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent