Bergþór Pálsson hefur velt getu sinni til að vera forseti Íslands fyrir sér

berg--or.jpg
Auglýsing

Óperu­söngv­ar­inn Berg­þór Páls­son hefur velt hlut­verki for­seta Íslands, mik­il­vægi þess fyrir þjóð­ina og kostum sínum og göllum til að sinna emb­ætt­inu mikið fyrir sér í kjöl­far þess að margir hafa hvatt hann til að bjóða sig fram í það sum­arið 2016. Berg­þór seg­ist ekki vera kom­inn á þá nið­ur­stöðu að kostir hans vegi þyngra en þó sé ekki tíma­bært að ákveða eitt eða neitt. Þetta kemur fram í við­tali við Berg­þór á Vísi.

Gæti orðið fyrsta sam­kyn­hneigði for­set­inn



Í þjóð­ar­púlsi Gallup, sem var birtur í lok júlí, sögð­ust sex af hverjum tíu aðspurðum ekki vita ekki hvern þeir vilja sem næsta for­seta Íslands. Ell­efu pró­sent þjóð­ar­innar sem hefur myndað sér afstöðu gagn­vart spurn­ing­unni vildu Ólaf Ragnar Gríms­son áfram á for­seta­stóli en 21 pró­sent aðspurðra vilja fá Jón Gnarr í hann.

Þegar ein­ungis var tekið til­lit til þeirra sem tóku afstöðu til sér­staks fram­bjóð­enda þá kom í ljós að 21 pró­sent vildu fá Jón Gnarr, fyrrum borg­ar­stjóra Reykja­vík­ur, sem næsta for­seta Íslands. Þá nefndu 17 pró­sent Katrínu Jak­obs­dótt­ur, for­mann Vinstri grænna, sem þann sem þeir vilja í emb­ætti for­seta Íslands. Mun fleiri nefndu nöfn þeirra tveggja en nafn Ólafs Ragn­ars Gríms­son­ar, sem mun hafa setið í for­seta­emb­ætti í 20 ár þegar kosið verður á næsta ári. Vert er að taka fram að bæði Jón og Katrín hafa gefið það út að þau sæk­ist ekki eftir því að verða næsti for­seti Íslands.

Berg­þór var ekki á meðal þeirra sem mæl­ast með mestan stuðn­ing í emb­ættið en nafn hans hefur þó lengi verið í umræð­unni. Hann segir marga hafa komið að máli við sig vegna mögu­legs fram­boðs, meðal ann­ars vegna þess að það gæti verið flott fyrir Íslend­inga að geta sagst eiga fyrsta kvenn­for­set­ann (Vig­dísi Finn­boga­dótt­ur) og svo fyrsta sam­kyn­hneigða for­set­ann, hann sjálf­an. Berg­þóri finnst helst vanta hjá sér að vera fróð­ari. "For­set­inn þarf að segja eitt­hvað af viti þar sem hann kem­ur.“

Auglýsing

Brátt skýrist hvort Ólafur Ragnar Grímsson muni gefa kost á sér til að sitja sjötta kjörtímabil sitt sem forseti. Brátt skýrist hvort Ólafur Ragnar Gríms­son muni gefa kost á sér til að sitja sjötta kjör­tíma­bil sitt sem for­set­i.

Getum staðið saman um rétt­látt þjóð­fé­lag



 

Berg­þór er einnig þeirrar skoð­unar að það þurfi ein­hvern til að peppa þjóð­ina upp. "Fá hana til að átta sig á hvað hún hefur mikla mannauð og hvað hún er æðis­leg. Við þurfum að setj­ast niður og finna þennan styrk sem við eig­um. Og það þýðir ekki að við eigum að hætta að gagn­rýna, ég er ekki að segja það. Við getum haldið áfram að standa saman um að það eigi að vera hér rétt­látt þjóð­fé­lag og allt það og það eigi ekki að ræna okk­ur.“

Enn sem komið er hefur Berg­þór ekki kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að kostir hans vegi þyngri en gall­arn­ir. Þó sé ekki tíma­bært að ákveða eitt eða neitt. „Ólafur Ragnar hefur ekki gefið neitt út og hann getur örugg­lega sinnt þessu vel áfram. Hann hefur átt í þessu glæsi­legan feril á sinn hátt.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None