Betur má ef duga skal - Jafnrétti kynja er mikilvægt efnahagsmál

konur.jpg
Auglýsing
Jafn­rétti kynj­anna er ekki aðeins mann­rétt­inda­mál, sem nauð­syn­legt er að berj­ast fyr­ir, heldur einnig mik­il­vægt efna­hags­mál. Það er erfitt til þess að hugsa, á degi Sam­ein­uðu þjóð­anna sem er í dag - og jafn­framt 40 ára afmæli Kvenna­frí­dags­ins - hversu miklum tæki­færum, hug­myndum og leið­toga­hæfi­leikum hefur verið eytt með því að halda niðri krafti og hug­viti kvenna í gegnum tíð­ina. 



Ísland getur um margt verið stolt af sinni sögu, hvað varðar fram­gang kvenna og jafn­rétt­is­mál, en betur má ef duga skal. Alltof algengt er að konur fái ekki að vera við stýrið, til dæmis í fjár­mála­geir­anum og á öðrum stöðum þar sem lyk­ilá­kvarð­anir um fjár­fest­ingar eru tekn­ar. Þar ættu konur að vera í meira mæli, enda ekki rök­rétt að karlar séu þar í miklum meiri­hluta, eins og tölur hafa sýnt.



Þær eru að með­al­tali með betri menntun en karl­ar, eins og tölur um útskrif­aða nem­endur úr háskólum sýna, og ættu því að vera oftar í lyk­il­stöð­um. Bless­un­ar­lega eru þær komnar inn í stjórnir fyr­ir­tækja í meira mæli en áður, en það þurfti samt til laga­breyt­ingar svo það færi að ger­ast nægi­lega hratt. 



Shinzo Abe, for­sæt­is­ráð­herra Jap­ans, er að leiða þjóð sína í gegnum mikla efna­hags­lega erf­ið­leika. Ekki aðeins vegna lít­ils hag­vaxtar og him­in­hárra opin­berra skulda (260 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu), heldur einnig vegna þess að konur hafa ekki fengið fram­gang í atvinnu­líf­inu í Japan í ára­tugi. Helst vopn rík­is­stjórnar Abe, í efna­hags­á­ætlun hans, er að koma fleiri konum við stýrið í fyr­ir­tækj­um, og einni í stjórn­mál­un­um. Staðan í Jap­an, hvað þessi mál varð­ar, er skammar­leg. Um 7,5 pró­sent stjórn­enda fyr­ir­tækja eru kon­ur, en mark­mið stjórnar Abe er að koma hlut­fall­inu upp í 30 pró­sent fyrir árið 2020. Nær allir stjórn­endur fyr­ir­tækja í Japan eru karlar á sex­tugs­aldri, margir tengdir ára­tuga gömlum við­skipta­böndum við stór­fyr­ir­tæki í land­in­u. 



Mark­miðið hjá Abe er virkja kraft kvenna í meira mæli og treysta á hug­vit þeirra og útsjón­ar­semi. Og umfram allt; stór­efla atvinnu­þátt­töku þeirra á öllum stigum í fyr­ir­tækj­um, en hún mælist mun lægri en karla.



Þetta dæmi frá Japan sýnir að það eru marg­vís­legar hindr­anir í veg­inum fyrir jafn­rétti kynj­anna á alþjóða­vett­vangi, og vafa­lítið má sjá lík­indi við þessar tölur sem Jap­anir vinna út frá hér á landi. Abe er heldur ekki sér­stak­lega vin­sæll, og hefur átt í vök að verj­ast. 



En það verður samt að segjast, að það er ánægju­legt að sjá jafn mik­il­vægt mál og það, að ryðja úr vegi hindr­unum fyrir sjálf­sögðu jafn­rétti kynj­anna, tekið upp á æðsta stig í efna­hags­legri stefnu­mótun í stærstu hag­kerfum heims­ins. Það mætti vel gera betur í þeim efnum hér á landi, þrátt fyrir marga sæta sigra á und­an­förnum árum.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None