Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að breyting hafi orðið á beitingu verkfallsréttar, og nú fari tiltölulega fámennir hópar í verkfall þar sem mest er fundið fyrir því, en ekki þannig að verkfallið bitni „jafnt á báðum aðilum eins og hefur verið fram til þessa.“
Þetta sagði Bjarni í svari við fyrirspurn Katrínar Júlíusdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag. „Það er mikið umhugsunarefni hvernig við höfum lent í því ítrekað á undanförnum mánuðum að grundvallarstoðir í okkar heilbrigðiskerfi eru teknar nánast í gíslingu til þess að ná fram kröfum í kjaraviðræðum,“ sagði Bjarni einnig. Það væri svo spurning um hvað væri í raun og veru deilt í kjaraviðræðum. „Er kjarni deilunnar sá að það skorti á að gera betur við þá sem eru lægstlaunaðir, eða er það til vitnis um einhver önnur sjónarmið þegar stór félög á borð við BHM vilja meina að menntun sé ekki metin nægilega til launa og ganga nánast svo langt að segja að jöfnuður hafi aukist um of, svo mjög að það borgi sig ekki lengur, það skili sér ekki í launaumslagið, að sækja góða menntun t.d. með háskólagöngu?“
Katrín spurði Bjarna um aðkomu stjórnvalda að kjaradeilum og sagði að hún og Samfylkingin hefðu miklar áhyggjur af ástandinu á vinnumarkaði. Hún sagði ríkisstjórnina hins vegar skila „fullkomnlega auðu“ í málinu, það væri staðfest með „vangaveltum“ fjármálaráðherra. „Eftir hverju er ríkið að bíða? Hér eru heilbrigðisstéttir í verkfalli í á þriðju viku og það eina sem heyrist frá ríkisstjórninni er að forsætisráðherra segir að aðilar þurfi að koma sér saman áður en ríkið komi að málum. Hvað er verið að segja, ríkið sjálft er viðsemjandi í þessari deilu? Menn eru að vísa frá sér ábyrgð. Menn koma sér undan því að svara fyrir þessa stöðu.“
Bjarni sagði hins vegar unnið „eftir þeirri hugmyndafræði að það sé einhvers virði að viðhalda stöðugleikanum sem náðst hefur, að það skipti heimilin og atvinnulífið máli að halda lágri verðbólgu í landinu, það skipti bara verulega miklu máli. Og við þurfum að halda þannig líka á spilunum í þessari kjaradeilu að menn geri ekki eitthvað á einu sviði sem valdi röskun á öðru, að menn velti bara ósættinu á undan sér.“
Ástandið jafnvel verra en í læknaverkfallinu
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður Vinstri grænna, spurði Bjarna líka um stöðu kjaramála. „Ekki er aðeins starfsemi spítalanna meira og minna lömuð og ástandið jafnvel verra en í læknaverkfallinu heldur bætast nú við dýralæknar og fleiri hópar sem lama matvælaframleiðslu og jafnvel útflutning, og starfsmenn fjársýslunnar eru komnir í verkfall. Fjármálaráðherra hlýtur nú að taka eftir því.“ Steingrímur spurði hvernig Bjarni sæi kjaramálin, því ríkisstjórnin bæri almenna ábyrgð í þeim auk þess að vera viðsemjandi.
„Við fylgjumst vel með því hvernig viðræðulotunni vindur fram og gerum okkur grein fyrir því að það getur skipt máli hvað ríkið hefur fram að færa,“ sagði Bjarni. Hann sagði ekki verið að bíða eftir neinu frá ríkinu, mest væri verið að ræða málin á vettvangi ríkissáttasemjara. Hann sagði ýmislegt koma til greina sem innlegg af hálfu stjórnvalda en það væri ekki hægt að gera neitt með launakröfur upp á 50 til 100 prósent.