Bjarni Benediktsson: Sala á bönkum verður að vera opin, gagnsæ og allir að sitja við sama borð

21092252760_44193dbf29_b.jpg
Auglýsing

Það hefði verið óráð að stilla bara upp stöð­ug­leika­skatti sem leið fyrir kröfu­hafa föllnu bank­anna til að geta lokið slitum á búum þeirra. Með því að bjóða upp á stöð­ug­leika­skil­yrðin sem val­kost hafi verið að sýna fram á að ekki væri ein­ungis um tekju­öfl­un­ar­að­gerð að ræða heldur væri und­ir­liggj­andi til­gangur rík­is­ins að losa um fjár­magns­höft. Það mun skipta gríð­ar­lega miklu máli að stíga var­lega til jarðar við sölu á eign­ar­hlutum í Lands­bank­an­um,  ganga úr skugga um að þar muni allir sitja við sama borð og tryggja dreifða eign­ar­að­ild. Þetta er meðal þess sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði í við­tali við Kast­ljós í kvöld.

Óráð að leggja bara á stöð­ug­leika­skatt



Bjarni ræddi þar nýjar vend­ingar við losun hafta, en í nótt var til­kynnt um að ríkið muni eign­ast Íslands­banka að öllu leyti sem hluta af stöð­ug­leika­fram­lagi slita­bús Glitn­is. Hann svar­aði einnig gagn­rýni um að íslenska ríkið væri að gefa slita­bú­unum afslátt með því að leggja ekki á þá stöð­ug­leika­skatt upp á 39 pró­sent sem myndi skila fleirum krónum til rík­is­ins, eða allt að 850 millj­örðum króna. Stöð­ug­leika­fram­lögin munu skila lægri upp­hæð til rík­is­sjóðs.

Bjarni sagð­ist ekki líta á losun hafta sem tekju­öfl­un­ar­leið heldur lausn á und­ir­liggj­andi vanda sem útheimti höft­in. Hann efast um að það hafi getað komið til álita að vera ein­göngu með skatta­leið­ina á borð­inu. Það hefði verið óráð að gera það, að mati Bjarna. Með því að bjóða upp á stöð­ug­leika­skil­yrði sem val­kost sýndi ríkið fram á að það væri ekki bara að sækja sér tekjur heldur leysa vanda. En þá þyrfti það líka að taka því þegar kröfu­hafar slita­bú­anna reyn­ast til­búnir til að mæta skil­yrð­un­um, sem Bjarni telur að þeir séu nú að gera.

Hann segir að hags­muna þjóð­ar­innar hafi verið gætt í mál­inu. "Ég held að við séum hér með aðgerðir sem eru algert eins­dæmi," sagði Bjarni. Aldrei áður hafi verið farið fram á afskriftir á eignum sem nema heilum fjár­lögum rík­is. Umskiptin sem verða við losun hafta geti breytt aðstæðum Íslend­inga mjög mikið til góðs. Aðspurður um hvenær Íslend­ingar geti búist við að höftum verði lyft segir Bjarni að það geti gerst eftir að útboð á aflandskrónum fer fram. Það útboð mun fara fram í kjöl­far þess að slitum á búum Glitn­is, Kaup­þings og Lands­bank­ans lýk­ur.

Auglýsing

Allir þurfa að sitja við sama borð



Ís­lenska ríkið hefur einu sinni einka­vætt banka­kerfi. Einka­væð­ing­ar­ferlið hefur verið harð­lega gagn­rýnt fyrir spill­ingu, ógagn­sæi og ófag­mennsku alla tíð síð­an. Bank­arnir sem ríkið seldi voru allir orðnir gjald­þrota örfáum árum eftir að þeir voru einka­vædd­ir.

Sú einka­væð­ing hefur skilið eftir mikla tor­tryggni hjá íslenskum almenn­ingi þegar kemur að sölu rík­is­eigna og eign­ar­haldi á fjár­mála­fyr­ir­tækj­um. Nýleg mál sem upp hafa komið í íslensku við­skipta­lífi, til dæmis sala á hlut í Sim­anum til val­ins hóps á mun lægra verði en öðrum bauðst í aðdrag­anda útboðs, hefur aukið mjög á þá tor­tryggni.

Í nótt var til­kynnt um að íslenska ríkið muni eign­ast Íslands­banka að fullu sem hluta af stöð­ug­leika­greiðslu slita­bús Glitn­is, gangi hún eft­ir. Auk þess á ríkið Lands­bank­ann að mestu. Bjarni bendir á að saman séu þessir tveir bankar um fjórð­ungur af þjóð­ar­fram­leiðslu og ljóst sé að ríkið geti ekki átt þá til lengd­ar. Þegar hefur verið til­kynnt að ríkið ætli sér að selja 30 pró­sent hlut í Lands­bank­anum á næsta ári. Bjarni sagði í Kast­ljósi að það þurfi að stíga hvert skrefi í banka­söl­unni af var­færni. Ferlið þurfi að vera opið og gagn­sætt. Það skipti gríð­ar­lega miklu máli að þar sitji allir við sama borð og að eign­ar­að­ild verði dreifð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None