Bjarni Benediktsson segir framgöngu Eyglóar Harðardóttur koma sér "verulega á óvart"

Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að röng mynd hafi verið dregin upp af stöðu frum­varps Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, um stofn­fram­lög vegna stuðn­ings við félags­legt hús­næði og þeim sam­skiptum sem átt hafi sér stað milli ráðu­neyt­anna tveggja vegna þess.

Eygló sagð­ist í sam­tali við Kjarn­ann í gær  ít­rekað hafa hafnað beiðnum frá fjár­mála­ráðu­neyt­inu um að hún dragi til baka frum­vörp sín um hús­næð­is­mál. Hún bíði eftir kostn­að­ar­mati á þeim og þau verði lögð fram.

„Þessi fram­­ganga fé­lags­­mála­ráð­herra kem­ur mér veru­­lega á óvart. Þetta mál er í sjálfu sér ósköp ein­falt,“ seg­ir Bjarni Bene­dikts­­son í sam­tali við mbl.is í dag. „Það er lagt inn frum­varp til kostn­að­ar­mats í fjár­­­mála­ráðu­neyt­inu. Eft­ir að vinna hefst við að fram­­kvæma kostn­að­ar­matið kem­ur fram að vel­­ferð­ar­ráðu­neytið er að vinna að breyt­ing­um á frum­varp­inu. Þá er það verk­lags­regla í sam­­skipt­um á milli ráðu­neyt­anna að vinnu við kostn­að­ar­matið er hætt og farið fram á að ráð­herr­ann aft­­ur­­kalli málið og leggi það fram að nýju þegar það hef­ur verið full­unn­ið.“

Auglýsing

Bjarni segir það rangt að hann hafi gert efn­is­lega athuga­semd við frum­varpið og að hann hafi viljað að Eygló end­ur­kall­aði það af efn­is­legum ástæð­u­m. "Ég verð að lýsa mik­illi furðu á því upp­­hlaupi sem hef­ur orðið út af þessu til­­­tekna máli allt frá því að það var fyrst lagt fram til kostn­að­ar­mats í fjár­­­mála­ráðu­neyt­in­u."

Hann segir enn fremur að Eygló verði að sætta sig við að frum­varp henn­ar lúti sömu regl­um og önn­ur slík­.Frum­vörp þurfi að vera full­unn­inn áður en kostn­að­ar­mat sé fram­kvæmt. Að því loknu séu þau tekin á dag­skrá í rík­is­stjórn og að því loknu í þing­flokkum stjórn­ar­flokk­anna ef rík­is­stjórnin hefur ákveðið að leggja þau fram á Alþingi. „Fé­lags­­mála­ráð­herra verður ein­fald­­lega að sætta við það að þetta mál sé unnið eft­ir sömu regl­um og önn­ur mál,“ segir Bjarni á mbl.­is.

 

Þrátt fyrir að frum­varpið hafi ekki feng­ist sam­þykkt í rík­is­stjórn þá hafi samt sem áður verið byrjað væri að ræða efn­is­­at­riði frum­varps­ins við aðila vinn­u­­mark­að­ar­­ins, þar sem það hefði fallið í grýtt­an jarð­veg.

Sjö vikur í fjár­mála­ráðu­neyt­inu



Fjár­mála­ráðu­neytið hefur und­an­farnar sjö vikur haft til umsagnar frum­vörp Eyglóar um hús­næð­is­bætur og um stofn­fram­lög vegna félags­legra íbúða. Í fyrra­dag ­sagði ráðu­neytið í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið að Eygló og vel­ferð­ar­ráðu­neytið hefðu dregið til baka frum­varp um stofn­fram­lög í þáver­andi mynd. Verið væri að skoða „tals­vert breytta útfærslu“ en að telja mætt­i „ósenni­legt úr því sem komið er að lokið verði við útfærslu á nýju frum­varpi um þennan mála­flokk ásamt umsögn um fjár­hags­á­hrif til fram­lagn­ingar á vor­þing­in­u.“

Eygló Harðardóttir. Eygló Harð­ar­dótt­ir.

Í sam­tali við Kjarn­ann í gær sagð­i Eygló þetta ekki vera rétt. „Fjár­mála­ráðu­neytið hefur óskað eftir því að ég aft­ur­kalli frum­vörp­in, ég hef hafnað því. Sú beiðni var ítrekuð gagn­vart stofn­fram­lög­unum en ég hef hafnað því að kalla þessi frum­vörp til baka og óskað eftir því að fá kostn­að­ar­mat á þau,“ segir Eygló í sam­tali við Kjarn­ann. Aðspurð hvers vegna svo mis­vísandi svör komi úr ráðu­neyt­unum segir Eygló að fjár­mála­ráðu­neytið verði að svara fyrir það hvers vegna það hafi gefið þau svör sem gefin voru í gær. Hún segir þó að sam­skipti hennar við Bjarna Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hafi verið „með ágæt­u­m“.

Til­búin að gera breyt­ingar fyrir vinnu­mark­að­inn



Eygló sagð­ist þó vera til­búin að gera breyt­ingar á frum­vörp­unum til að koma til móts við aðila vinnu­mark­að­ins. „Við höfum átt núna í nokkrar vikur í mjög miklum og góðum sam­tölum við aðila vinnu­mark­aðr­ins þar sem ég lýsti því yfir að ég væri til­búin til þess að gera breyt­ingar á mínum frum­vörpum til þess að koma til móts við þeirra ósk­ir. Hins vegar hef ég lagt áherslu á það að fá kostn­að­ar­mat á mín frum­vörp til þess að við getum þá líka áttað okkur á því hver er kostn­að­ar­auk­inn við það að koma til móts við þessar kröf­ur.“ Hún segir áherslu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar vera að lækka hús­næð­is­kostnað hjá þeim sem eru með lægstu tekj­urnar og það sé hún mjög viljug að koma til móts við. Aðal­at­riðið sé að bæta stöð­una á hús­næð­is­mark­aði, vinna á biðlistum eftir félags­legu hús­næði og ná niður kostn­aði hjá þeim tekju­lægstu.

„En það teng­ist nátt­úru­lega því að við séum hér að fara að semja á grund­velli efna­hags­stöð­ug­leika, að við séum að huga að fólki sem er með lægstu og með­al­tekj­urnar og að allir aðilar nái sam­an. Allir gefi eitt­hvað eftir og allir komi með eitt­hvað að borð­in­u. Ef hins vegar það næst ekki nið­ur­staða á vinnu­mark­aði þannig að þetta verði hluti af okkar fram­lagi inn í þær deil­ur, þá mun ég leggja fram mín frum­vörp óbreytt."

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None