Bjarni hefur ákveðið að hefja söluferli Íslandsbanka

Ákvörðun ráðherra byggir á fyrirliggjandi greinargerð sem lögð var fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingi og felur í sér að bankinn skuli seldur í áföngum fyrir árslok 2023.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur ákveðið að hefja fram­hald sölu­með­ferðar á hlutum í Íslands­banka í sam­ræmi við til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins frá 20. jan­úar síð­ast­liðn­um. Ráð­herr­ann sendi Banka­sýsl­unni bréf um ákvörð­un­ina í dag.

Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag en rík­­is­­sjóður seldi 35 pró­­sent hlut í bank­­anum síð­ast­liðið sum­ar.

Ákvörðun ráð­herra byggir á fyr­ir­liggj­andi grein­ar­gerð sem lögð var fyrir fjár­laga­nefnd og efna­hags- og við­skipta­nefnd Alþingi og felur í sér að bank­inn skuli seldur í áföngum fyrir árs­lok 2023.

Auglýsing

Banka­sýslan telur að ófriður í Aust­ur-­Evr­ópu raski ekki meg­in­for­sendum sölu­á­forma

Fram kemur hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu að umsagnir nefnd­anna liggi nú fyrir en meiri­hlutar þeirra beggja mæli með því að haf­ist verði handa við fram­hald sölu.

Þá telur Seðla­bank­inn að telja megi að jafn­ræði bjóð­enda verði tryggt og er salan talin hafa tak­mörkuð áhrif á gjald­eyr­is­mark­að, gjald­eyr­is­forða bank­ans og laust fé í umferð.

Fram­hald sölu verður háð því að mark­aðs­að­stæður séu hag­felld­ar. Þrátt fyrir að ófriður í Aust­ur-­Evr­ópu hafi haft marg­háttuð áhrif á eigna- og fjár­mála­mark­aði á heims­vísu telur Banka­sýslan að það raski ekki meg­in­for­sendum sölu­á­for­manna að svo stöddu. Þannig hafi verð á hlutum í bank­anum ekki verið hærra en það er um þessar mund­ir.

­Rík­­is­­sjóður seldi 35 pró­­sent hlut í bank­­anum í sumar fyrir 55,3 millj­­arða króna. Mark­aðsvirði þess hlutar er í dag 86,1 millj­­arðar króna. Hann hefur því hækkað um 30,8 millj­­arða króna á nokkrum mán­uð­­um. Sú hækkun lendir hjá nýjum eig­endum hlut­­ar­ins. 

Á móti fékk ríkið mark­aðsvirði á eign sína í bank­an­um, sem var skráður á markað sam­hliða söl­unni í sum­­­ar. Nú er 65 pró­­sent hlutur rík­­is­­sjóðs met­inn á um 160 millj­­arða króna. 

Mik­ill hagn­aður í fyrra og stefnt á tug­millj­arða útgreiðslur

Íslands­­­banki hagn­að­ist um 23,7 millj­­arðar króna á árinu 2021. Arð­­semi eigin fjár var 14,2 pró­­sent og sem var vel yfir tíu pró­­sent mark­miði bank­ans. Kostn­að­­ar­hlut­­fall bank­ans lækk­­aði úr 54,3 pró­­sent í 46,2 pró­­sent milli ára.

Eigið fé Íslands­­­banka var 203,7 millj­­arðar króna um síð­­­ustu ára­­mót og eig­in­fjár­­hlut­­fall bank­ans 25,3 pró­­sent. Útlán til við­­skipta­vina Íslands­­­banka juk­ust um 7,9 pró­­sent á síð­­asta ári. Þá aukn­ingu má að mestu rekja til auk­inna umsvifa á hús­næð­is­­mark­aði. Vaxta­munur bank­ans var 2,4 pró­­sent. Hreinar vaxta­­tekjur voru 34 millj­­arðar króna og hækk­­uðu um tvö pró­­sent milli ára. Þókn­ana­­tekjur hækk­­uðu hins vegar um 22,1 pró­­sent og voru sam­tals 12,9 millj­­arðar króna.

Á grund­velli þess­­arar afkomu var ákveðið að greiða hlut­höfum sínum 11,9 millj­­arða króna í arð. Þar af fóru 65 pró­­sent til stærsta ein­staka eig­and­ans, íslenska rík­­is­ins, eða rúm­­lega 7,7 millj­­arðar króna. Þeir sem eiga 35 pró­­sent hlut í bank­­anum fengu svo sam­an­lagt tæpa 4,2 millj­­arða króna í arð­greiðslu. Auk þess stefnir stjórn bank­ans að því að greiða út 40 millj­­arða króna í umfram eigið fé á næstu 12-24 mán­uð­­um. Sú veg­­ferð hófst með því að aðal­fundur bank­ans sam­þykkti í gær að hefja end­­ur­­kaup á bréfum fyrir 15 millj­­arða króna á næstu mán­uð­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent