Bjarni segir rangt að hann „vilji Sósíalistaflokkinn feigan“

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Gunnar Smári Egilsson snúi út úr orðum sínum um styrki til stjórnmálaflokka. Honum þyki 120 milljóna styrkur á kjörtímabilinu til flokks sem fékk enga þingmenn kjörna einfaldlega of há fjárhæð.

Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir að það sé rangt hjá Gunn­ari Smára Egils­syni, for­manni fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks Íslands, að hann „vilji Sós­í­alista­flokk­inn feig­an“.

Þetta segir Bjarni í færslu á Face­book, þar sem hann bregst við þeim ummælum Gunn­ars Smára að með hug­renn­ingum sínum um styrki til stjórn­mála­sam­taka, sem settar hafa verið fram í við­tölum að und­an­förn­um, sé Bjarni ekki að leita að betri virkni lýð­ræðis með afstöðu sinni heldur að leita leiða til að ýkja völd Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins umfram fylgi flokks­ins og draga úr áhrifum kjós­­enda ann­­ara flokka.

„Það er rangt hjá Gunn­ari Smára Egils­syni að ég vilji Sós­í­alista­flokk­inn feig­an. Það er hins vegar ekki nýtt að Gunnar Smári geri mér upp skoð­an­ir,“ skrifar ráð­herra á Face­book og bætir því við að það sé „her­bragð“ Gunn­ars Smára og „reyndar sós­í­alista víða um lönd“ að snúa út úr, iðu­lega til að draga athygli frá aðal­at­riði máls.

Auglýsing

„Í þessu til­viki vill Gunnar Smári ekki ræða spurn­ing­una sem ég velti upp, en hún er þessi: Er eðli­legt að stjórn­mála­flokkur sem nær engum þing­manni inn á Alþingi í kosn­ingum fái um 120 millj­ónir í stuðn­ing frá skatt­greið­end­um?“ skrifar Bjarni og bætir því við að hann þyki honum ein­fald­lega of há fjár­hæð.

Hann sjálfur vilji „auka frelsi flokk­anna til að bjarga sér sjálf­um, en draga úr opin­berum stuðn­ingi við þá alla.“

Bjarni grípur síð­an, í færslu sinni á Face­book, til þekkts frasa frá Marg­aret Thatcher, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Breta, sem sagði eitt sinn eitt­hvað á þá leið að vand­inn við sós­í­alista væri sá að á end­anum klári þeir ann­arra manna fé.

Á Twitter deilir hann færsl­unni með þeim sömu orð­um.

Fram­lögin hækkuð gríð­­ar­­lega á síð­­asta kjör­­tíma­bili

Fram­lög til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka úr rík­­­­is­­­­sjóði voru hækkuð veru­­­­lega í byrjun síð­­­­asta kjör­­­­tíma­bils. Til­­­­­­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­­­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­­­flokka á árinu 2018 um 127 pró­­­­­­­­­sent var sam­­­­­­­­­þykkt í fjár­­­­­­­­­lögum sem voru afgreidd áður en þingi var slitið í lok des­em­ber 2017. Fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­­­flokka á því ári áttu að vera 286 millj­­­­­­­­­ónir króna en urðu 648 millj­­­­­­­­­ónir króna. Ein­ungis full­­­trúar Flokks fólks­ins og Pírata skrif­uðu ekki undir til­­­lög­una.

Hún var sett fram sem sam­eig­in­­­legt erindi sem bar yfir­­­­­­­­­­­­­­­skrift­ina „Nauð­­­­­­­­syn­­­­­­­­leg hækkun opin­berra fram­laga til stjórn­­­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­­sam­taka“. Í því var farið fram á að fram­lög til stjórn­­­­­­­­­­­­­­­mála­­­­­­­­flokka verði „leið­rétt“.

Kjarn­inn greindi frá því í des­em­ber í fyrra að þeir níu stjórn­­­­­­­­­mála­­­­­flokkar sem fengu nægj­an­­­­­legt fylgi í síð­­­­­­­­­ustu þing­­­­­kosn­­­­­ingum til að fá úthlutað fjár­­­­­munum úr rík­­­­­is­­­­­sjóði áttu sam­tals að fá 728,2 millj­­­­­ónir króna til að skipta á milli sín á þessu ári. 

Það er sama upp­­­­­hæð og flokk­­­­­arnir fengu sam­tals 2020 og sama upp­­­­­hæð og þeir fengu í fyrra. Til við­­­­­bótar við þær greiðslur er kostn­aður vegna starfs­­­­­manna þing­­­­­flokka greiddur af Alþingi.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent