Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, hafnar ásökunum um að hann hafi dregið sér fé í starfi sínu sem sveitarstjóri Ásahrepps. Þetta kemur fram í færslu sem Björgvin birti á Facebook síðu sinni í morgun.
Stöðufærslan sem Björgvin G. birti á Facebook í morgun.
Björgvin hafnar að gerð hafi verið tilraun til að leyna fyrirframgreiðslu upp á 250 þúsund krónur, sem hann fékk frá hreppnum í nóvember á síðasta ári. Hann segir að sú greiðsla hafi verið merkt sem slík í reikningi sveitarfélagsins.
Þá segir hann að það hafi verið mistök af hans hálfu að bera ekki ákvörðun um kaup á myndavél, sem ætluð hafi verið fyrir heimasíðu hreppsins og fleira, undir yfirmann sinn.
Loks segir Björgvin G. í stöðufærslunni: „Það voru mistök og rangt af mér að biðja ekki um heimild frá oddvita vegna fyrirframgreiddra launa og ákvarðana um öll útgjöld. Því biðst ég afsökunar á, enda fór ég þar ekki að reglum um útgjöld. Aldrei stóð annað til að en að þau útgjöld yrðu gerð upp sem laun til mín, likt og merking á fyrirfram launagreiðslunni ber með sér.“