Björn Ingi hættir sem ritstjóri, mun leiða ný verkefni

bjorninginota.jpg
Auglýsing

Björn Ingi Hrafns­son er hættur sem rit­stjóri Pressunn­ar. Hann mun héðan af verða útgef­andi allra miðla Vef­pressunnar og leiða ný verk­efni á vefum fyr­ir­tæk­is­ins sem verða kynnt á næst­unni. Krist­jón Kor­mákur Guð­jóns­son, frétta­stjóri Pressunn­ar, hefur tekið við sem rit­stjóri vef­mið­ils­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu sem barst rétt í þessu.

Kjarn­inn fjall­aði nýverið um að við­ræður hafi átt sér stað milli Vef­pressunnar og DV um sam­runa.

Til­kynn­ing Vef­pressunn­ar:



Krist­jón Kor­mákur Guð­jóns­son hefur verið ráð­inn rit­stjóri Pressunn­ar. Krist­jón hefur starfað hjá Vef­press­unni frá 1. júní 2012, fyrst sem blaða­maður en hann var ráð­inn sem frétta­stjóri þann 11. maí 2013. Hann tekur nú við sem rit­stjóri. Krist­jón hefur aðal­lega feng­ist við frétta­skrif fyrir Press­una en einnig skrifað á Bleikt og Eyj­una.

Björn Ingi Hrafns­son verður útgef­andi allra miðla Vef­pressunn­ar, Pressunn­ar, Eyj­unnar og Bleikt. Þá sér hann um sjón­varps­þátt­inn Eyj­una á Stöð 2, auk þess sem hann mun leiða ný verk­efni á vegum fyr­ir­tæk­is­ins sem nánar verða kynnt á næst­unni.

Auglýsing

„Ég hlakka til að takast á við þessa áskor­un. Jafn­framt vil ég þakka Birni Inga Hrafns­syni frá­far­andi rit­stjóra og Arn­ari Ægis­syni fram­kvæmda­stjóra Vef­pressunnar fyrir það traust sem þeir sýna mér með þess­ari ráðn­ingu og þetta mikla tæki­færi,“ segir Krist­jón.

Krist­jón bætir við að það sé hörku­vinna að stýra miðli sem alltaf er í loft­inu en á Vef­press­unni er afar öflug rit­stjórn sem er alltaf á vakt­inni.

„Það eru bæði spenn­andi og skemmti­legir tímar framundan og þetta er stærsta tæki­færi mitt á ferl­in­um. Þetta leggst mjög vel í mig og ég hlakka til að spreyta mig á rit­stjórn­ar­hlut­verk­inu. Við munum halda áfram að bjóða upp á fjöl­breytt hlað­borð af fréttum þar sem allir geta fundið eitt­hvað við sitt hæfi“.

Krist­jón  hefur meðal ann­ars feng­ist við skáld­sögu­skrif, blaða­mennsku og hand­rita­skrif. Hann er búsettur í Hvera­gerði ásamt sam­býl­is­konu sinni og þremur dætr­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None